Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 08:04 Búið er að bæta við merkingum í brottfararslanum til að hafa stjórn á röðinni. Aðsend Töluverð röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ábendingum sem borist hafa fréttastofu. Fréttastofa náði tali af einum farþega sem var á hlaupum í gegnum flugvöllinn eftir klukkustundar bið. Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn. Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is. Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni klukkan átta. Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð. „Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee. „Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“ Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu. Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn. „Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“ Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti. Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu. Ekki eins margir tengifarþegar Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, segir að nú sé háönn í sumartraffík á flugvellinum og því mjög mikið að gera. Sjö af átta leitarlínum öryggisleitarinnar eru opnar. „Það sem virðist vera að gerast í dag er að það sé lægra hlutfall af tengifarþegum hjá flugfélögunum en venjulega og þá verður hlutfall farþega sem þurfa að fara í gegnum öryggisleit hærra en við gerðum ráð fyrir,“ segir hann. Skýringin gæti einnig verið að farþegar sem eiga flug nær hádegi séu að mæta mjög snemma. Vonandi leysist úr málinu á næstu mínútum. „Þá myndast smá flöskuháls þegar margir mæta á sama tíma sem eiga flug fram eftir morgni. Okkur sýnist vera að leysast úr þessu því það eru ekki eins margir farþegar í röð núna.“ Hann hvetur farþega til þess að mæta áfram tímanlega þar sem raðir geti myndast á álagstímum. Þá sé gott að vera búin að huga að innritun, svo sem á netinu eða í sjálfsafgreiðsluvélunum. Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík síðdegis að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út. Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis verði hægt að greina meiri vökva. Fréttin hefur verið uppfærð með svörum Isavia. Keflavíkurflugvöllur Flug Landamæri Ferðaþjónusta Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira
Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn. Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is. Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni klukkan átta. Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð. „Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee. „Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“ Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu. Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn. „Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“ Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti. Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu. Ekki eins margir tengifarþegar Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, segir að nú sé háönn í sumartraffík á flugvellinum og því mjög mikið að gera. Sjö af átta leitarlínum öryggisleitarinnar eru opnar. „Það sem virðist vera að gerast í dag er að það sé lægra hlutfall af tengifarþegum hjá flugfélögunum en venjulega og þá verður hlutfall farþega sem þurfa að fara í gegnum öryggisleit hærra en við gerðum ráð fyrir,“ segir hann. Skýringin gæti einnig verið að farþegar sem eiga flug nær hádegi séu að mæta mjög snemma. Vonandi leysist úr málinu á næstu mínútum. „Þá myndast smá flöskuháls þegar margir mæta á sama tíma sem eiga flug fram eftir morgni. Okkur sýnist vera að leysast úr þessu því það eru ekki eins margir farþegar í röð núna.“ Hann hvetur farþega til þess að mæta áfram tímanlega þar sem raðir geti myndast á álagstímum. Þá sé gott að vera búin að huga að innritun, svo sem á netinu eða í sjálfsafgreiðsluvélunum. Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík síðdegis að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út. Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis verði hægt að greina meiri vökva. Fréttin hefur verið uppfærð með svörum Isavia.
Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is.
Keflavíkurflugvöllur Flug Landamæri Ferðaþjónusta Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira