Veður

Nýjasta sólmyrkva­spáin gefur í­við betri fyrir­heit

Freyja Þórisdóttir skrifar
Sú gula virðist ætla að glenna sig um mestallt landið á morgun, mánudaginn 10. ágúst.
Sú gula virðist ætla að glenna sig um mestallt landið á morgun, mánudaginn 10. ágúst. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig.

Norðanáttin sem hefur verið að undanförnu er á undanhaldi er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar kemur jafnframt fram að hægist á henni en víða má reikna með að vindur verði fimm til þrettán metrar á sekúndu.

Á morgun er svo von á mjög mildu veðri um landið allt, léttskýjað og vestlæg eða breytileg átt þrír til átta metrar á sekúndu. Hiti fer víða nærri tuttugu stigum og er áætlað að hlýjast verði fyrir norðan og austan.

Á sólmyrkvadaginn, miðvikudaginn 12. ágúst, er útlit fyrir að skýjað verði víða og rigning, einkum um landið sunnanvert. Nú kemur þó fram í hugleiðingunum að spáin undanfarinn sólarhring gefi ívið betri fyrirheit um að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og lengst af léttskýjað. Hiti 12 til 18 stig að deginum.

Á þriðjudag: Hægt vaxandi austlæg átt og skýjað með köflum eða léttskýjað, en þykkar smám saman upp sunnantil. Fer að rigna á Suður- og Suðausturlandi síðdegis. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag (almyrkvi á sólu): Austan og norðaustan 3-10 m/s og allvíða skýjað og rigning með köflum, en lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi þegar líður á daginn. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.

Á fimmtudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálítil væta um norðan- og austanvert landið, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 18 stig, mildast syðst.

Á föstudag og laugardag: Útlit fyrir norðvestlæga eða breytilega átt. Skýjað að mestu og sums staðar stöku síðdegisskúrir. Fremur milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×