Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 11. ágúst 2026 17:03 Einstaklega vel heppnuð dagskrá Hinsegin daga er nú að baki og við blasa verkefni tengd þeim fyrirheitum og fögru áformum sem gefin voru um úrbætur í réttindamálum hinsegin fólks. Heildarsamtök launafólks, ásamt Samtökum atvinnulífsins og stjórnvöldum, eiga þar hlut að máli. Samstaða um úrbætur Það hljómar hálf ótrúlega að fyrsta hagrannsóknin á kjörum hinsegin fólks á Íslandi hafi fyrst litið dagsins ljós árið 2022. Það var BHM sem átti frumkvæðið, ásamt Samtökunum ’78 og Hagfræðistofnun HÍ, og fékk ASÍ og BSRB með sér inn í vegferðina. Nú, á Hinsegin dögum 2026, var næsta skref tekið: dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin ’78, Samtök atvinnulífsins, ASÍ, BSRB, BHM og KÍ undirrituðu viljayfirlýsingu um að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði með markvissum aðgerðum. Það sem byrjaði sem ein rannsókn á vegum BHM er á fjórum árum orðið að samstarfsverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar. Hinsegin karlar með 30% lægri atvinnutekjur að meðaltali en gagnkynhneigðir Niðurstöður rannsóknar BHM, ASÍ og BSRB eru um margt sláandi en skýrust er myndin þegar horft er til hinsegin karla. Þeir eru með 30% lægri atvinnutekjur að meðaltali en gagnkynhneigðir karlar sem eru tekjuhæstir á vinnumarkaði. Leiðrétt fyrir menntun og aldri eru hommar t.a.m. með 32% lægri atvinnutekjur en gagnkynhneigðir karlar, í því sambandi er rétt að fram komi að hommar eiga að baki meiri menntun en gagnkynhneigðir karlar heilt yfir. Hommar búa við mun minna atvinnuöryggi en aðrir í rannsókninni, hljóta síður framgang í stjórnunarstöður og sækja helst í atvinnugreinar sem kalla má kvenlægar og undirverðlagðar. Alþjóðlegar rannsóknir staðfesta sama mynstur. Þó benda nýlegar rannsóknir til þess að transkonur standi verst af öllum innan hinsegin samfélagsins hvað stöðu á vinnumarkaði varðar. Enn á eftir að rannsaka það á Íslandi en of fáir trans einstaklingar tóku þátt í hagrannsókninni 2022. Vandinn einskorðast ekki við vinnumarkaðinn Það væri of einfalt og ósanngjarnt að segja þennan mismun atvinnutekna hinsegin fólks og annarra vera eingöngu á ábyrgð launagreiðenda eða atvinnurekenda. Rætur vandans liggja dýpra og tengjast samfélaginu í heild. Hinsegin fólk er líklegra til að glíma við andleg veikindi vegna útilokunar og eineltis í æsku og hefur oftast minna tengslanet en aðrir. Erfið æska mótar sjálfstraust, námsval og starfsferil fólks löngu áður en það stígur sín fyrstu skref í starfi, en þegar á vinnumarkað er komið bætist við bein mismunun í ráðningum, framgangi og frammistöðumati. Í dag er aðeins um helmingur sís-kynja hinsegin fólks að fullu opið með hinseginleika sinn á vinnustað og 37% transfólks. Af góðri ástæðu því reynslan kennir hinsegin fólki að leynd borgar sig. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ, Magnús Þór Jónsson formaður KÍ. Nú þarf að fylgja orðum eftir með aðgerðum Viljayfirlýsingin sem undirrituð var í Iðnó síðastliðinn föstudag er mikilvægt skref en hún er einmitt það: viljayfirlýsing, án lögbundinna eða tímasettra skuldbindinga. Sá aðgerðarhópur sem nú á að stofna þarf að hafa hugfast að vandinn verður ekki leystur með háfleygum loforðum heldur kerfisbundnum greiningum líkt og BHM hafði forgöngu að. Nú þurfum við að tryggja að vilji sem yfirlýstur er af ráðherrum, atvinnulífi og verkalýðshreyfingu skili sér í bættu starfsöryggi og hærri tekjum hinsegin fólks á Íslandi. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Vinnumarkaður Hinsegin Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar