Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Samúel Karl Ólason skrifar 11. ágúst 2026 20:06 Lucy Davis á afmælissýningu Shaun of the Dead árið 2024. Getty/Alan Chapman, Dave Benett Lucy Davis, sem er hvað þekktust fyrir að leika Dawn Tinsley, ritara í bresku Office, er með ólæknandi krabbamein. Þessu greindi leikkonan, sem er 53 ára gömul, frá í færslu á Instagram í dag og sagðist hún reyna að lifa sínu besta lífi á meðan hún getur það.
Davis greindist með fjórða stigs brjóstakrabbamein sem hefur dreift sér í bein hennar. Það er ólæknandi og of langt gengið fyrir lyfjameðferð. Þá hvetur hún konur til að fara í greiningu ef þær finna fyrir einhverju skrítnu í brjóstum sínum. Þegar hún fann fyrst fyrir gúlpi á brjósti sínu hafi hann verið svo lítill að hún hafi í fyrstu ekki ætlað að láta skoða hann nánar. „Ætli ég sé ekki að segja ykkur að hunsa ekkert. Látið skoða allt,“ skrifaði leikkonan. Hún bætti við að nú væri hún að reyna að lifa lífinu á eins skemmtilegan máta og hún gæti. Hún vill einnig halda áfram að leika, hafi hún tök á því. „Ég reyni alltaf að finna lexíur í því neikvæða. Krabbamein hefur ekki valdið vonbrigðum þar. Það er margt sem ég hef lært af því og ég er þakklát fyrir það. Eins og sum ykkar munu vita, getur sársaukinn verið á öðru stigi. Að standa og ganga of lengi getur verið erfitt og ég þarf stundum að nota hjólastól (svo ef þið sjáið mig á ferðinni í einum, þá megið þið ýta við mér!)“ Davis segist ekki hrædd við framtíðina. Þetta verði erfiðara fyrir fjölskyldu hennar en hana sjálfa. View this post on Instagram A post shared by Lucy Davis (@reallucydavis) Auk þess að leika í Office, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma, hefur David einnig leikið í kvikmyndum eins og Wonder Woman, Shaun of the Dead og í hinum ýmsu þáttum í gegnum árin.
Hollywood Bretland Bíó og sjónvarp Krabbamein Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira