Körfubolti

„Hinn full­komni keppnis­maður“ leggur skóna á hilluna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook var alltaf á fullu gasi inn á vellinum og gaf aldrei neitt eftir.
Russell Westbrook var alltaf á fullu gasi inn á vellinum og gaf aldrei neitt eftir. Getty/Justin Ford

Russell Westbrook hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir átján keppnistímabil í NBA-deildinni í körfubolta.

Þetta tilkynnti þessi 37 ára gamli leikstjórnandi á samfélagsmiðlum sínum.

Westbrook var árið 2017 valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar (MVP) og hefur níu sinnum verið valinn í stjörnulið NBA. Bæði árin 2015 og 2017 var hann stigahæstur í allri deildinni.

„Stundum veistu ekki einu sinni hvenær þú hefur þegar horft á endinn,“ skrifaði hinn 37 ára Westbrook í færslu sinni, sem innihélt myndband af ferli hans með frásögn leikarans Michael B. Jordan. „Þú þurftir að vera þarna. Og nú er þetta búið.“

Westbrook, sem hefur níu sinnum verið valinn í stjörnuliðið, er með 20,9 stig, 6,9 fráköst og 8,0 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum og á NBA-metið yfir flestar þrefaldar tvennur á ferlinum, eða 209, en hann fór fram úr langvarandi meti Oscar Robertson upp á 181 árið 2021. Það var met sem hafði staðið síðan 1974.

Westbrook varð aldrei NBA-meistari en hann náði að spila fyrir Oklahoma City Thunder, Houston Rockets, Washington Wizards, Los Angeles Lakers, Los Angeles Clippers, Denver Nuggets og Sacramento Kings.

„Russell Westbrook er hinn fullkomni keppnismaður,“ sagði Sam Presti, framkvæmdastjóri Thunder, í yfirlýsingu. „Innri trú hans og taumlaust óttaleysi hjálpuðu til við að leggja grunninn að félaginu okkar frá fyrsta degi árið 2008 og hann jók sjálfstraustið og veitti samfélagi okkar innblástur á hverju ári eftir það.“

Á síðasta tímabili sínu byrjaði Westbrook 58 leiki fyrir Sacramento Kings og var með 15,2 stig, 6,7 stoðsendingar og 5,4 fráköst að meðaltali. Á tímabilinu varð hann sá leikmaður sem hefur tekið flest fráköst í stöðu leikstjórnanda og varð annar leikmaðurinn í sögu deildarinnar, ásamt LeBron James, til að ná 25.000 stigum og 10.000 stoðsendingum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×