Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. ágúst 2026 11:30 Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur haldið blokkarpartý á Menningarnótt frá árinu 2013. Í ár er planið að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum.
Margeir Steinar Ingólfsson, betur þekktur sem DJ Margeir, hefur haldið tónleikana MOMENT á Menningarnótt síðan árið 2013. Gestum býðst þar að stíga inn í undraheim danstónlistar undir handleiðslu plötusnúðsins. Viðburðurinn er ókeypis í boði Icelandair og allir velkomnir. „MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru,“ segir Margeir um viðburðinn. Fólk getur styrkt Minningarsjóðinn með því að kaupa styrktarmiða á moment.is þar sem öll framlög renna óskipt í sjóðinn. Þeir sem kaupa styrktarmiða fara í pott og eiga möguleika á vinningum frá veitingastöðum í nágrenninu. DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum. „Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif,“ segir Margeir. Gestir skemmtu sér rækilega fyrir tveimur árum. Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst. Fjölskylda Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést voveiflega í stunguárás á Menningarnótt árið 2024, er stuðningnum afar þakklát. „Menningarnótt mun alltaf hafa djúpa merkingu fyrir okkur, fjölskyldu Bryndísar Klöru. Þess vegna snertir það okkur þegar fólk ákveður að taka gleðina og kraftinn á Menningarnótt til að skapa eitthvað fallegt og kærleiksríkt í nafni Bryndísar,“ segir Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru. „Við erum DJ Margeiri og öllum þeim sem taka þátt í MOMENT innilega þakklát. Við getum ekki breytt því sem gerðist, en saman getum við haft áhrif á það sem gerist næst,“ segir hann jafnframt.
Menning Menningarnótt Stunguárás við Skúlagötu Reykjavík Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Sjá meira