Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. ágúst 2026 10:29 Alexander Bahlai bóksali á markaðnum sem brann í nótt. AP Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir stórfelldar dróna- og eldflaugaárásir Rússa í Úkraínu í nótt. Áfram skiptast ríkin á drónum og eldflaugum en úkraínsk drónaárás hæfði vöruhús netverslunarrisans rússneska Wildberries sem stóð í ljósum logum í morgun.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir úkraínskum stjórnvöldum að þrjár rússneskar eldflaugar og tæplega hundrað drónar hefðu verið skotnar niður í nótt. Loftvarnasírenur ómuðu í Kænugarði fram eftir morgni. Iðnaðarbil logar í Moskvu Í Rússlandi, í útjaðri Moskvu, varð vöruhús netverslunarrisans Wildberries, oft kallaður Amazon Rússlands, fyrir úkraínskri drónaárás. Andrej Vorobjov héraðsstjóri sagði Moskvu hafa orðið fyrir einni umfangsmestu drónaárás síðari tíma í nótt. Um sex hundruð úkraínskir drónar voru sendir í átt að rússnesku höfuðborginni. Drónar og eldflaugar hæfðu skotmörk í Kænugarði.AP Myndir sýna þéttan reykjarmökk stíga upp af vöruhúsi Wildberries í Koledínó, um 25 kílómetra frá miðborg Moskvu, eftir úkraínska drónaárás. Úkraínumenn hafa ítrekað gert vöruhús fyrirtækisins að skotmörkum dróna en þeir segja vöruhúsin nýtt sem flutninga- og birgðastöðvar fyrir hergögn. Rússar neita þessu. Vöruhúsið er í iðnaðarbili í Koledínó en eldur kviknaði út frá sprengingunni. Starfsfólki var gert að rýma húsnæðið. Markaður brann í Kænugarði Slökkviliðsmenn í Kænugarði börðust í nótt við eld sem kviknaði á markaði eftir að hann varð fyrir rússneskum eldflaugum og drónum. Búið er að ráða niðurlögum hans en að sögn Vitalís Klitsjkó borgarstjóra særðust sex hið minnsta, þar á meðal barn, í úkraínsku höfuðborginni í nótt. Slökkviliðsmenn leituðu sér skjóls í neðanjarðarlestarstöð þegar loftvarnarsírenurnar ómuðu.AP Borgarstjóri Kryvyj Ríh segir mann á fimmtugsaldri, sem hafði verið saknað, hafa fundist í húsarústum. Annar maður lést og fjórtán starfsmenn stálvers særðust í árás sem Rússar segja að hafi beinst að framleiðslu hergagnaíhluta. Tveir einstaklingar á sjötugsaldri létust þegar heimili var eyðilagt í Sapórisjsju. Loftárásir færast í aukana Rússneska varnarmálaráðuneytið segir árásir sínar á Kænugarð í nótt hafa beinst að FirePoint-verksmiðju sem framleiðir hluta í úkraínskar Flamingo-eldflaugar, auk verksmiðju sem framleiðir íhluti fyrir dróna. Þá segjast Rússar hafa gert árás á Krementsjúk-olíuhreinsunarstöðina í Poltava-héraði, sem þeir segja að sjái úkraínska hernum fyrir eldsneyti, auk þess að hafa gert árás á þurrflutningaskip nærri Ódessu sem sagt var að flytti hergögn. Dan Johnson fréttaritari BBC í Kænugarði segir loftárásir hafa færst í aukana undanfarnar vikur. Aukinnar grimmdar gæti. Að hans sögn hafa síðustu nætur verið tiltölulega rólegar en nóttin sem leið hafi verið allt önnur. Ítrekaðar loftvarnasírenur, eldflaugar og drónar. Fimm viðvaranir hafa verið gefnar út frá miðnætti.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira