Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 10:49 Bryndís Ósk tekur við af Erni Pálssyni. Aðsend Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna.
Í tilkynningu kemur fram að Bryndís sé ekki með öllu ókunnug sjávarútvegi, enda alin upp á Höfn í Hornafirði. Hún hafi starfað um árabil sem jökla- og gönguleiðsögumaður og hafi jafnframt um tíma verið umsjónarmaður fjallaleiðsögunámsins á Höfn. Undanfarin níu ár hefur hún starfað við verkefnastjórnun innan félagasamtaka og byggingargeirans, meðal annars á sviði öryggis- og gæðamála, samningagerðar og verkefna tengdum umhverfisvottunum. Síðast starfaði hún tímabundið sem verkefnastjóri öryggis- og gæðamála hjá Sorpu. Bryndís lauk meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og hefur undanfarin ár stundað meistaranám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst. „Ég er mjög spennt fyrir starfinu fram undan og hlakka til að kynna mér betur allar hliðar starfseminnar við hlið Arnar, sem er hafsjór þekkingar og reynslu þegar kemur að málefnum smábátaeigenda,“ segir Bryndís í tilkynningu. Mikilvægur liðsstyrkur Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir ráðninguna mikilvægan liðsstyrk fyrir samtökin. „Styrkleikar Bryndísar á sviði verkefnastjórnunar og lögfræði eru mikilvæg viðbót í starf okkar fyrir smábátaeigendur. Þetta er viðamikið umhverfi að setja sig inn í og við erum heppin að hafa tækifæri til að láta reynsluna renna á milli kynslóða hjá þeim Erni og Bryndísi,“ segir Kjartan Páll og þakkar Erni fyrir sín störf.
Sjávarútvegur Vistaskipti Mest lesið Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Sjá meira