Viðskipti innlent

Sigurður Arnar nýr fram­kvæmda­stjóri hjá Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Arnar Stefnisson.
Sigurður Arnar Stefnisson.

Sigurður Arnar Stefnisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sviðs stafrænnar þróunar og gagna hjá Íslandsbanka.

Í tilkynningu segir að Sigurður hafi áratuga reynslu af tækni- og rekstrarstjórnun með sérstaka áherslu á gögn, gervigreind, stafræna umbreytingu og netöryggi, bæði hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi. Sigurður hefur þegar hafið störf hjá bankanum.

„Sigurður starfaði síðast sem tæknistjóri netöryggissviðs hjá Gen Digital, móðurfélagi Norton og Avast, þar sem hann leiddi alþjóðlegt teymi á þriðja hundrað sérfræðinga á sviði gervigreindar, gagnalausna, hugbúnaðarþróunar og netöryggis og átti sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þar áður var hann forstöðumaður rannsókna- og varnarsviðs hjá Gen Digital og Avast, þar sem hann leiddi sameiningu öryggislausna félagsins í eina alþjóðlega tæknieiningu sem þjónar hundruðum milljóna viðskiptavina.

Sigurður hefur einnig gegnt stjórnunar- og sérfræðistörfum hjá öðrum alþjóðlegum tæknifyrirtækjum, meðal annars hjá Cyren, þar sem hann var framkvæmdastjóri íslenskrar starfsemi félagsins samhliða því að leiða alþjóðleg þróunar- og greiningarteymi á fjórum starfsstöðvum. Hann hóf feril sinn í hugbúnaðar- og öryggisþróun hjá Frisk Software og Commtouch og hefur því fylgt þróun greinarinnar frá upphafi hennar hér á landi.

Í störfum sínum hefur Sigurður lagt ríka áherslu á að nýta gögn, gervigreind og sjálfvirknivæðingu til að einfalda rekstur, stytta þróunartíma og bæta þjónustu við viðskiptavini. Samhliða því hefur hann unnið markvisst að uppbyggingu sterkrar vinnustaðamenningar og leitt umfangsmiklar skipulagsbreytingar hjá alþjóðlegum tæknifyrirtækjum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×