Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 14:03 Max Dowman hefur þegar sett sitt mark á ensku úrvalsdeildina. Gera Trey Nyoni og Shea Lacey slíkt hið sama í vetur? vísir/epa/getty Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á föstudaginn. En hvaða ungstirni munu slá í gegn á komandi tímabili? Fjölmiðladeild ensku úrvalsdeildarinnar tók saman sjö táninga sem gætu stimplað sig inn í vetur. Sá fyrsti sem er nefndur til sögunnar er leikmaður sem lét til sín taka á síðasta tímabili, Arsenal-maðurinn Max Dowman. Hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora (sextán ára og 73 daga gamall) þegar hann gulltryggði sigur Arsenal á Everton. Alls lék Dowman, sem verður ekki sautján ára fyrr en á gamlársdag, þrettán leiki í öllum keppnum fyrir Arsenal á síðasta tímabili. Táningar Liverpool og Manchester United eru einnig taldir geta haft áhrif á gang mála í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Þetta eru þeir Trey Nyoni og Shea Lacey. Klippa: Hvaða ungstirni slá í gegn í vetur Nyoni, sem er nítján ára miðjumaður, kom við sögu í sex leikjum með Liverpool á síðasta tímabili og lék alls fjórtán leiki í öllum keppnum. Lacey er sömuleiðis nítján ára en þessi kantmaður eða sóknarsinnaði miðjumaður lék þrjá deildarleiki á síðasta tímabili. George Hemmings hjá Aston Villa, Veljko Milosavljevic hjá Bournemouth, Joel Drakes-Thomas hjá Crystal Palace og Harrison Armstrong hjá Everton eru einnig taldir geta slegið í gegn í vetur. Upphafsleikur ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á Emirates á föstudaginn en þar taka Englandsmeistarar Arsenal á móti nýliðum Coventry City. Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar: Föstudagurinn 21. ágúst 19.00 Arsenal - Coventry Laugardagurinn 22. ágúst 11.30 Hull - Man. Utd 14.00 Everton - Crystal Palace 14.00 Ipswich - Sunderland 14.00 Nott. Forest - Leeds 16.30 Brentford - Tottenham Sunnudagurinn 23. ágúst 13.00 Brighton - Aston Villa 13.00 Man. City - Bournemouth 15.30 Newcastle - Liverpool Mánudagurinn 24. ágúst 19.00 Fulham - Chelsea Upphitunarþáttur Messunnar fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni verður sýndur á Sýn Sport klukkan 17:45 á morgun. Enski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira
Sá fyrsti sem er nefndur til sögunnar er leikmaður sem lét til sín taka á síðasta tímabili, Arsenal-maðurinn Max Dowman. Hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora (sextán ára og 73 daga gamall) þegar hann gulltryggði sigur Arsenal á Everton. Alls lék Dowman, sem verður ekki sautján ára fyrr en á gamlársdag, þrettán leiki í öllum keppnum fyrir Arsenal á síðasta tímabili. Táningar Liverpool og Manchester United eru einnig taldir geta haft áhrif á gang mála í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Þetta eru þeir Trey Nyoni og Shea Lacey. Klippa: Hvaða ungstirni slá í gegn í vetur Nyoni, sem er nítján ára miðjumaður, kom við sögu í sex leikjum með Liverpool á síðasta tímabili og lék alls fjórtán leiki í öllum keppnum. Lacey er sömuleiðis nítján ára en þessi kantmaður eða sóknarsinnaði miðjumaður lék þrjá deildarleiki á síðasta tímabili. George Hemmings hjá Aston Villa, Veljko Milosavljevic hjá Bournemouth, Joel Drakes-Thomas hjá Crystal Palace og Harrison Armstrong hjá Everton eru einnig taldir geta slegið í gegn í vetur. Upphafsleikur ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á Emirates á föstudaginn en þar taka Englandsmeistarar Arsenal á móti nýliðum Coventry City. Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar: Föstudagurinn 21. ágúst 19.00 Arsenal - Coventry Laugardagurinn 22. ágúst 11.30 Hull - Man. Utd 14.00 Everton - Crystal Palace 14.00 Ipswich - Sunderland 14.00 Nott. Forest - Leeds 16.30 Brentford - Tottenham Sunnudagurinn 23. ágúst 13.00 Brighton - Aston Villa 13.00 Man. City - Bournemouth 15.30 Newcastle - Liverpool Mánudagurinn 24. ágúst 19.00 Fulham - Chelsea Upphitunarþáttur Messunnar fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni verður sýndur á Sýn Sport klukkan 17:45 á morgun.
Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar: Föstudagurinn 21. ágúst 19.00 Arsenal - Coventry Laugardagurinn 22. ágúst 11.30 Hull - Man. Utd 14.00 Everton - Crystal Palace 14.00 Ipswich - Sunderland 14.00 Nott. Forest - Leeds 16.30 Brentford - Tottenham Sunnudagurinn 23. ágúst 13.00 Brighton - Aston Villa 13.00 Man. City - Bournemouth 15.30 Newcastle - Liverpool Mánudagurinn 24. ágúst 19.00 Fulham - Chelsea
Enski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira