Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Smári Jökull Jónsson skrifar 18. ágúst 2026 22:01 Hörn Valdimarsdóttir er ein af stofnendum Defend Iceland sem er á bakvið herferðina þar sem varað er við djúpfölsuðum myndböndum. Patrekur Jaime og Aron Mola tóku þátt í herferðinni og birtu myndbönd á samfélagsmiðlum. Vísir/Bjarni Djúpfölsuð myndbönd þar sem ímynd þekktra einstaklinga er notuð verða sífellt algengari að sögn Defend Iceland. Tæknin sé orðin þannig að nánast hver sem er geti útbúið slíkt myndefni og til að koma í veg fyrir möguleg svik er fjölskyldum ráðlagt að nota lykilorð í samskiptum sín á milli.
Margir hafa vafalaust séð myndbönd með Patreki Jaime þar sem hann talar um hverju hann ætlar að segja „já“ annars vegar og „nei“ hins vegar í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst. Þar er hann sjálfur þó ekki á ferðinni heldur er um að ræða falsað myndband þar sem andlit hans og rödd eru notuð. Myndböndin eru hluti af herferð Defend Iceland og Netvís til að sýna hversu auðvelt er að nota djúpfalsanir í netsvikum eða til að skapa upplýsingaóreiðu. @patrekurjaimee Verum vakandi fyrir djúpfölsuðu efni á netinu. Ekki láta plata þig 🥸 @DefendIceland x @Netvís #íslenskt #fyrirþig #samstarf ♬ original sound - Patrekur Jaime „Núna er tæknin orðin miklu aðgengilegri fyrir alla og núna getur nánast hver sem er farið að framleiða djúpfölsunarmyndband af hverjum sem er. Og fyrir almenning, þá er verið að nota svona árásir til að hafa pening af fólki,“ segir Hörn Valdimarsdóttir, rekstrarstjóri og ein af stofnendum Defend Iceland. Tvítryggja sig og nota lykilorð Um sé að ræða nýja tegund árása og Hörn segir djúpfölsuð myndbönd meðal annars hafa verið notuð í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2024. Þá verði þau sífellt algengari á meðal almennings. Hörn segir að fólk eigi alltaf að vera temmilega tortryggið og mælir með að fjölskyldur notist við lykilorð í samskiptum sín á milli til að sannreyna uppruna skilaboða. „Þegar þú færð sendar einhverjar beiðnir þar sem er verið að biðja þig um að gera eitthvað sem er ekki hefðbundin beiðni að þá er rosa gott að tvítryggja okkur með því að hringja í viðkomandi og segja: Heyrðu, varst þetta raunverulega þú eða einmitt að nota einhvers konar lykilorð okkar á milli,“ bætir Hörn við. Myndband Patreks er eitt af fjórum sem hann og leikarinn Aron Mola birtu á TikTok í samvinnu við Defend Iceland og Netvís. @aronmola Verum vakandi fyrir djúpfölsuðu efni á netinu. Ekki láta plata þig 🥸 @Netvís x @DefendIceland ♬ original sound - aronmola Þekktir einstaklingar eru í mestri hættu á að ímynd þeirra sé misnotuð. „Og svo auðvitað stjórnendur líka, stjórnendur fyrirtækja, forstjórar, framkvæmdastjórar, fjármálastjórar. Það er oft verið að nota ímynd þeirra og verið að splæsa saman forritum til að taka fjarfundi með kannski fólki í bókhaldi til að fá millifærslu í gegn í fyrirtæki,“ segir Hörn að lokum.
Gervigreind Lögreglumál Fjármálafyrirtæki Tækni Samfélagsmiðlar Netöryggi Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira