Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 09:15 Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands fyrr í vikunni. Vísir/Anton Brink Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.
Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl árið 2024. Aðalmeðferðin hófst á mánudag og stendur til að hún verði fram í næstu viku. Ingunn Rut kaus að lesa yfirlýsingu sem hún hafði sjálf skrifað og sagðist ekki ætla að svara neinum spurningum. Áður en hún hóf að lesa yfirlýsinguna dró hún andann djúpt nokkrum sinnum, greinilega taugaóstyrk. „Ég hef nú ákveðið að falla frá fyrri afstöðu varðandi sakarneitun og öllum sakargiftum í málinu,“ hóf Ingunn yfirlýsinguna á. Hún játaði skýlaust að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung gagnvart brotaþola. Hún hafnar því að hann hafi verið bundinn á höndum og fótum. „Ég sló brotaþola aldrei og myndi aldrei nota hnúajárn eða vopn til að slá aðra manneskju, hvað þá eldri mann.“ Ingunn neitar því að hafa framið ránsbrot og að hafa beitt líkamlegu ofbeldi eða hótun til að neyða fjármuni. Hún geri sér þó grein fyrir því að fjármunirnir hafi verið teknir af brotaþola með saknæmum og ólögmætum hætti. Þarna dregur Ingunn aftur andann djúpt og segir dómari henni að taka sinn tíma. Hún sagðist gera sér grein fyrir því að hún væri að játa á sig sakargiftir í alvarlegustu liðum ákærunnar og að játningin kom seint fram. Ingunn neitaði allri sök í mars. „Þetta er ekki einföld ákvörðun í ljósi þess að ég á bæði föður og sambýlismann sem er jafnframt barnsfaðir minn í þessu máli, sem báðir neita sök.“ Ingunn játar vörslu fíkniefna að ákveðnu marki en hafnar sakargiftum um peningaþvætti og neitar vopnalagabroti. Þá viðurkennir hún bótakröfu brotaþola en hafnar fjárhæðinni. Nýfæddi sonurinn gleðigjafi Ingunn segist hafa verið í neyslufíkn á þessum tíma, í apríl 2024, en eftir að hún losnaði úr gæsluvarðhaldi hafi hún ekki neytt fíkniefna. Nú sæki hún AA-fundi. Frá þessu hafi hún reynt eftir bestu getu að lifa eðlilegu lífi með sambýlismanni sínum, Andra Má, sem er einnig ákærður, og segist hafa reynt að stunda atvinnu. Það var síðan þegar hún talaði um nýfæddan son þeirra sem hún brast í grát. „Hann er minn gleðigjafi í lífinu, ég vonast til að geta átt með honum gæfuríka framtíð,“ segir Ingunn sem tekur sér annað hlé og þurrkar tárin. Baðst afsökunar meðan tárin féllu „Ég vil biðja [brotaþola] afsökunar á því að hafa valdið honum miklum sársauka með alvarlegum afleiðingum,“ sagði Ingunn. Hún viti að hún beri mikla ábyrgð í málinu og hún muni axla ábyrgð á þeim dómi sem falli í málinu. Hún sjái mikið eftir sinni þátttöku. „Ég veit að ég get ekkert sagt eða gert til að hljóta fyrirgefningu hans en mér þykir þetta leitt.“ Við þessi orð koma ekkasog frá Ingunni og stendur verjandi hennar upp og leggur höndina á öxl hennar. Hann stendur við hlið hennar á meðan hún klárar að lesa yfirlýsinguna. Verjandinn hellir einnig vatni í glas sem hún drekkur og þurrkar svo fleiri tár. Hún biður sömuleiðis fjölskyldu brotaþola afsökunar og fjölskyldu sína. Að lokum biður hún samfélagið í Reykholti afsökunar á þátttöku sinni. Það heyrðist eftir að Ingunn gekk út og dyrunum var lokað að dómssalnum að hún fór að hágráta. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira