Kjóllinn brann korter í brúðkaup Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 07:02 Sólborg og Magnús giftu sig á Reyðarfirði síðasta sumar og var dagurinn draumi líkastur. Guðný Lára „Það var ansi furðulegt símtal að hringja og segja: „Ég er að fara að gifta mig eftir minna en mánuð og mögulega var brúðarkjóllinn minn að brenna“. Ég viðurkenni alveg að ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta yfir þessu. En auðvitað er þetta bara flík og það reddast alltaf allt sem á að reddast,“ segir Sólborg Arna Steinþórsdóttir sem lenti í heldur óvanalegu atviki síðastliðið sumar þegar hún var í þann mund að fara að gifta sig.
Sólborg er fædd árið 1996 og starfar sem ráðgjafi á mannauðssviði hjá Eimskip. Hún er gift Magnúsi Guðlaugi Magnússyni, klippara hjá Sýn og hjónin eru jafngömul. Þau hafa verið par í áraraðir og trúlofuðu sig í byrjun árs 2024. Sólborg ræddi við blaðamann um þennan ógleymanlega dag og brunaatvik sem átti sér stað nokkrum vikum fyrir brúðkaup. Sólborg og Magnús eru búin að vera saman í fjölda ára og trúlofuðu sig í byrjun árs 2024. Guðný Lára Draumur á Reyðarfirði Þau giftu sig á Reyðarfirði 26. júlí 2025 og var dagurinn draumi líkastur að sögn þeirra hjóna. „Athöfnin fór fram í Reyðarfjarðarkirkju og veislan síðan í hlöðunni í Seljateig, sem er í eigu fjölskyldu mannsins míns. Það var okkur ótrúlega dýrmætt að geta fagnað með öllu okkar fólki á þessum stað og við hefðum ekki viljað hafa þetta neins staðar annars staðar.“ Brúðkaupið stóð í raun yfir heila helgi. „Þar sem það er ansi langt ferðalag fyrir flesta að fara austur voru allir komnir til Reyðarfjarðar á föstudeginum. Við byrjuðum helgina á pöbbkvissi á Kaffi Kósý, sem er bar og veitingastaður í bænum. Besti vinur okkar hafði útbúið spurningakeppnina og það kvöld var ótrúlega skemmtilegt. Það var svo góð leið til að hita upp saman fyrir stóra daginn.“ Fjölskyldan á bleiku skýi eftir brúðkaupið.Guðný Lára Á laugardeginum byrjaði Magnús, maður Sólborgar, daginn á því að fara yfir í hús foreldra sinna, þar sem hann var með strákinn þeirra og stóran hóp af mönnum í kringum sig að gera sig klára. „Ég varð hins vegar eftir í Seljateig með öllum mínum bestu konum. Förðunarfræðingurinn Erna Hrönn kom eldsnemma og farðaði mig ásamt nokkrum öðrum og stuttu síðar kom ljósmyndarinn okkar, Guðný Lára. Hún tók myndir bæði hjá okkur stelpunum og fór síðan yfir til strákanna og myndaði undirbúninginn þar líka. Mamma bestu vinkonu minnar græjaði dögurð fyrir okkur og andrúmsloftið var svo afslappað og yndislegt. Við vorum allar spenntar en samt bara svo rólegar og tilbúnar í daginn.“ Tilbúin að sleppa tökunum Sólborg segist sérstaklega muna eftir tilfinningunni sem tók yfir hjá henni þennan morguninn. „Ég var einhvern veginn bara búin að sleppa tökunum. Allur undirbúningurinn var búinn og nú myndi bara allt fara eins og það ætti að fara. Það var grenjandi rigning fyrir athöfnina en ég nennti einu sinni ekki að stressa mig á því. Auðvitað var spenna í maganum og ég vonaðist eftir því að allt myndi ganga vel, en það var samt ákveðin ró yfir mér. Athöfnin var klukkan þrjú og mamma kom með mér í brúðarbílnum í kirkjuna. Ég get ekki ímyndað mér að hafa ekki haft hana með mér. Það var svo dýrmætt augnablik sem við fengum bara tvær saman.“ Sólborg og mamma hennar áttu ómetanlega stund fyrir brúðkaupið.Guðný Lára Fann til í kinnum af gleði Í athöfninni voru hjónin með píanóleikara og þverflautuleikara. „Þau spiluðu Can You Feel the Love Tonight með Elton John þegar systir mannsins míns og dóttir hennar gengu inn sem blómastelpurnar okkar og mamma mín og sonur okkar gengu inn með hringana. Síðan spiluðu þau Can’t Help Falling in Love með Elvis Presley þegar ég og pabbi minn gengum að altarinu. Ég brosti svo mikið alla athöfnina að ég var farin að finna til í kinnunum. Við fundum svo mikið fyrir allri ástinni í kirkjunni og það var ótrúlega fallegt að sjá pabba minn, tengdapabba og manninn minn alla klökkna.“ Eftir athöfnina fóru hjónin í myndatöku á meðan gestirnir fóru upp í Seljateig í fordrykk og forrétti. „Veðurguðirnir voru svo sannarlega með okkur því beint eftir athöfn stytti upp og hætti að rigna. Við fengum milt og gott veður allan daginn og kvöldið og það stytti alltaf upp á hárréttum tímum. Við stelpurnar vorum búnar að sjá á netinu fólk vera grafa pulsur í garðinum kvöldið fyrir stóra viðburði sem átti að kalla á gott veður þannig við gerðum það og ég vil meina að veðrið hafi verið pulsunni að þakka. Við vorum alltaf ákveðin í því að myndatakan yrði úti í náttúrunni, enda vorum við á þessum fallega stað úti á landi, og myndirnar komu ótrúlega fallega út.“ Sólborg og vinkonur hennar á Reyðarfirði í sveitasælu yfir brúðkaupshelgina. Þær grófu pulsu fyrir gott veður. Aðsend Skemmtilegasta upplifun í heimi Eftir myndatökuna fóru nýgiftu hjónin svo yfir í veisluna. „Þar var ansi þétt dagskrá af ræðum, leikjum og skemmtiatriðum sem fólkið okkar hafði verið að plana fyrir okkur. Sem betur fer vorum við með algjörlega frábæran veislustjóra, hann Almar Blæ Sigurjónsson leikara, sem er æskuvinur mannsins míns. Hann sá um að allt gengi fullkomlega upp þetta kvöld. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa tilfinningunni að sitja bara og hlusta á ræður, lög og öll skemmtiatriðin sem fólkið okkar hafði lagt svona mikla vinnu í að undirbúa fyrir okkur. Það var algjörlega ómetanlegt og raunverulega eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.“ Brúðkaupið var einhver skemmtilegasti dagur lífs þeirra hjóna. Guðný Lára Ást og umhyggja bak við hverja máltíð Maturinn var alveg upp á tíu og allir gestir sáttir. „Brúðarkakan var bökuð af tengdapabba mínum og systur mannsins míns og það var alvöru metnaður og ást á bak við hana. Besta vinkona mín og frænka mín voru líka búnar að baka og græja fullt af litlum sætum bitum með kaffinu. Þegar ræðuhöldum og skemmtiatriðum lauk, sem var orðið ansi seint, var komið að okkur að dansa fyrsta dansinn. Við höfðum æft hann saman með hjálp YouTube og dönsuðum við Með þér með Bubba Morthens. Eftir það tók Þorgeir Brimir trúbador við og hélt uppi alvöru sveitaballsstemningu. Allir dönsuðu úr sér allt vit langt fram eftir nóttu.“ Athöfnin var einlæg og ógleymanleg. Allir dönsuðu fram á nótt í veislunni og gæddu sér á dýrindis veitingum.Guðný Lára Um miðnætti setti mamma Sólborgar upp samlokugrillstöð og þar var mikil ást og umhyggja að baki. „Hún hafði smurt ekkert eðlilegt magn af samlokum sem hægt var að henda í grillið fyrir þá sem þurftu smá orku til að halda áfram að dansa. Það sló rækilega í gegn og ég vil meina að þetta hafi verið besta grillsamloka sem ég hef nokkurn tímann borðað. Allt kvöldið var bara fullkomið og svo ótrúlega gaman að ég get varla lýst því. Það var líka svo mikill sjarmi yfir því að hafa brúðkaupið úti á landi. Fólkið okkar var búið að leggja alla þessa leið fyrir okkur og allir fóru bara all in alla helgina. Hjálpin sem við fengum frá öllum dagana fyrir brúðkaupið var líka ómetanleg. Þetta hefði aldrei getað orðið að veruleika án þeirra. Maður fann bara hlýjuna og ástina frá öllum helgina alla. Þetta var klárlega skemmtilegasti dagur sem við höfum upplifað.“ Gleðin var við völd allan brúðkaupsdaginn.Guðný Lára Ánægð að enginn var veikur eða dáinn Sólborg hafði verið ótrúlega fljót að finna draumakjólinn sinn og virtist það skrifað í skýin fyrir hana. „Ég var rétt byrjuð að skoða og pæla í kjólum tæpu ári fyrir brúðkaupið þegar ég sá að Loforð væri að fara vera með lagersölu á brúðarkjólum. Ég ákvað því að vera hagsýn, dró vinkonurnar með mér og fann þar óvænt kjólinn minn. Sirka hálfu ári fyrir brúðkaupið fór ég svo með hann aftur í Loforð og lét stytta hann og laga hann alveg að mér. Ég var þvílíkt ánægð með hann og hélt að þar með væri kjólamálið einfaldlega búið.“ Svo varð ekki og úr varð heldur betur óvanaleg lífsreynsla. „Þar sem kjóllinn var frá lagersölu var hann í raun sýningareintak en hann var í fullkomnu standi. Eftir að hann var kominn úr breytingum og alveg tilbúinn hugsaði ég að það væri ekkert vitlaust að setja hann í hreinsun. Mánuði fyrir brúðkaupið fór því frænka mín með kjólinn fyrir mig í hreinsun hjá Efnalauginni Björgu. Daginn áður en við áttum að sækja hann gerðist svo það sem enginn bjóst við, það kviknaði í efnalauginni.“ Sólborg bjóst seint við því að brúðarkjóll hennar myndi brenna rétt fyrir brúðkaup.Aðsend Þegar Sólborg var ný mætt í vinnuna fékk hún símtal frá mömmu sinni og bjóst við því versta. „Hún var mjög dramatísk og sagði mér að hún þyrfti að segja mér mjög leiðinlegar fréttir. Ég heyrði bara á röddinni hennar að hún var ekkert að grínast. Síðan sagði hún mér að það hefði kviknað í efnalauginni þar sem brúðarkjóllinn minn hafði verið í hreinsun. Ég var auðvitað fyrst og fremst bara fegin að það væri enginn veikur eða dáinn, miðað við hversu alvarleg mamma lét í sér heyra. Við vissum hins vegar ekkert á þessum tímapunkti hvort kjóllinn hefði sloppið eða hversu mikið tjónið væri hjá þeim og það var auðvitað engin leið að vita það strax.“ „Mögulega var brúðarkjóllinn minn að brenna“ Það fyrsta sem Sólborg gerði var að hringja í Loforð. „Það var ansi furðulegt símtal að hringja og segja: Ég er að fara að gifta mig eftir minna en mánuð og mögulega var brúðarkjóllinn minn að brenna.“ Sólborg er óendanlega þakklát stelpunum hjá Loforði, sem hún segir bókstaflega hafa bjargað sér frá fyrsta símtali. „Þær vildu allt fyrir mig gera. Kjóllinn sem ég hafði keypt var auðvitað úr lagersölu og var ekki lengur til hjá þeim en þær voru fljótar að finna hann hjá framleiðandanum og fengu dagsetningu á því hvenær þyrfti að panta hann svo hann myndi nást til landsins áður en við færum austur. Þær buðu mér líka að troða mér inn hjá sér og koma að máta aðra kjóla ef ég vildi kannski bara fá allt annan kjól.“ Kjólamálin redduðust og gott betur. Guðný Lára Ætlað að finna þennan kjól Tveimur dögum eftir brunann fékk hún svo staðfest frá efnalauginni að því miður hefði brúðarkjóllinn verið einn af þeim flíkum sem eyðilögðust alveg í brunanum. „Þá fór ég aftur með vinkonum mínum í Loforð að máta kjóla, bara til öryggis ef það skyldi vera einhver annar kjóll sem biði mín áður en við þyrftum að panta hinn hjá framleiðandanum. Þær voru í alvörunni svo yndislegar hjá Loforð. Ég mátaði nokkra kjóla og svo kom hún með einn sem var mjög ólíkur kjólnum sem ég hafði upphaflega ætlað að gifta mig í. Um leið og ég mátaði hann fann ég bara að þetta væri kjóllinn. Þetta hljómar ógeðslega dramatískt, en tilfinningin var í alvörunni bara: Ókei, mér var ætlað að finna þennan kjól.“ Kjóllinn var meira að segja sýningareintak og í stærð Sólborgar, þannig að hann bókstaflega beið bara þarna eftir mér. Þær náðu líka að troða mér inn hjá saumakonunni sinni í breytingar svo allt myndi nást áður en við færum austur.“ Sólborg var enn ánægðari með nýja kjólinn.Guðný Lára Tveimur dögum áður en hjónin héldu austur fór Sólborg svo og sótti kjólinn eftir breytingarnar. „Hann var bara fullkominn og eftir það hugsaði ég varla aftur um þann sem brann. Og það segja það allir sem sjá þá báða að kjóllinn sem ég endaði á að vera í hafi verið miklu flottari en það þorir eflaust enginn að segja neitt annað,“ segir Sólborg og skellir upp úr. Allt reddaðist og ástin alltumlykjandi Hún viðurkennir að það hafi verið krefjandi að halda ró sinni fyrst þegar hún fékk fréttir af brunanum. „Ég hugsaði bara: „Hverjar eru líkurnar á að þetta gerist?“ Ég viðurkenni alveg að ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta yfir þessu. En auðvitað er þetta bara flík og það reddast alltaf allt sem á að reddast Ég fann líka bara svo til með þeim hjá efnalauginni, sérstaklega þegar það varð ljóst hversu mikið tjónið hjá þeim var. Í enda dags er þetta auðvitað bara kjóll. Ég er samt ótrúlega þakklát fyrir hvað allir voru tilbúnir að hjálpa okkur þegar þetta gerðist, sérstaklega fólkið hjá Loforð og Efnalauginni Björgu. Þetta fór bara allt saman nákvæmlega eins og það átti að fara. Við fengum að eiga yndislegan dag með öllu besta fólkinu okkar og það er það sem stendur upp úr þegar maður lítur til baka.“ Ástin var alltumlykjandi.Guðný Lára Það sem situr mest eftir hjá Sólborgu er í raun hversu mikla ást og hlýju þau fundu frá öllum í kringum þau. „Hvort sem það var fólk sem lagði alla leið austur fyrir okkur, fjölskyldan okkar og vinir sem hjálpuðu til við undirbúninginn eða fólkið sem lagði vinnu í að gera brúðkaupsdaginn okkar að því sem hann varð. Við hefðum aldrei getað gert þetta án þeirra og það er eitthvað sem við munum alltaf vera óendanlega þakklát fyrir.“
Brúðkaup Ástin og lífið Tíska og hönnun Mest lesið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Fleiri fréttir Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sjá meira