Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 19. ágúst 2026 14:02 Öldrun, mannréttindi og þjónustusamfélag framtíðarinnar Við stöndum frammi fyrir einni stærstu samfélagsbreytingu næstu áratuga. Við lifum lengur og hlutfall eldra fólks fer vaxandi. Þetta er ekki séríslensk áskorun. Evrópa öll stendur frammi fyrir sömu breytingu. Af hverju ætti 400 þúsund manna þjóð að reyna að þróa allar lausnirnar ein? Getum við unnið miklu meira með nágrannaþjóðum okkar, lært af þeim sem hafa náð bestu árangri og þróað nýjar lausnir saman? Gæti full aðild að ESB opnað enn frekar á skipulagt samstarf, rannsóknir, nýsköpun og fjármögnun verkefna sem snúa að einni stærstu samfélagsbreytingu okkar tíma? Við þurfum nýtt þjónustusamfélag Við höfum byggt upp gott velferðarsamfélag. En aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast hraðar en skipulag samfélagsins. Samfélagið þarf að þróast í takt við þjónustuþörfina. Við þurfum að leita lausna fyrr til að tryggja betur lífsgæðin. Er lausnin að þróa þjónustusamfélag? Þar sem fólki er hjálpað fyrr að viðhalda sjálfstæði, heilsu, virkni og góðum lífsgæðum. Þjónustusamfélagið spyr ekki aðeins: Hvaða þjónustu þarf einstaklingurinn þegar hann getur ekki lengur séð um sig sjálfur? Það spyr miklu fyrr: Hvað þarf einstaklingurinn til að geta áfram lifað sjálfstæðu, virku og innihaldsríku lífi? Þetta er grundvallarbreyting á hugsun. Hvaða samfélagsbreytingar þurfum við að takast á við? Verkefnin eru mörg og þau tengjast: Hlutfall eldra fólks hækkar og færra fólk á vinnualdri stendur undir þjónustunni. Við lifum lengur og sextugsaldurinn getur verið upphaf áskoranna fyrir næstu 20–30 árin. Heilbrigðis- og umönnunarþörf mun aukast. Skortur á starfsfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu getur orðið enn meiri. Fleiri þurfa að geta búið sjálfstætt lengur með stuðningi og þjónustu. Við þurfum fjölbreyttari húsnæðiskosti fyrir 60+. Við þurfum að vinna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun. Velferðartækni, fjarþjónusta og gervigreind geta gjörbreytt þjónustunni. Við þurfum að tryggja sjálfsákvörðunarrétt, reisn og þátttöku fólks þegar það eldist. Við þurfum að líta á þessa breytingu sem tækifæri til nýsköpunar – ekki aðeins sem aukinn kostnað. Þetta er verkefni þjónustusamfélags framtíðarinnar. 60+ á ekki að þýða skert lífsgæði Þarna þurfum við líka að breyta orðræðunni. Við eigum ekki fyrst og fremst að ræða sívaxandi fjölda eldra fólks sem „vandamál“. Spyrjum: Hvernig viljum við lifa síðustu 20–30 ár ævinnar? ·Við viljum geta ráðið eigin lífi. ·Við viljum halda virkni. ·Við viljum hitta annað fólk. ·Við viljum hafa tilgang og hlutverk. ·Við viljum geta valið hvar við búum. Viljum við ekki reyna að útfæra lausnir þannig að þegar við þurfum aðstoð að þjónustan styðji við sjálfstæði okkar í stað þess að við missum það? Við þurfum alltaf að stuðla að mannréttindum á að hvaða æviskeiði sem við erum. Getum við hugsað húsnæðismálin alveg upp á nýtt? Húsnæðið er gott dæmi um hvernig ný hugsun getur gagnast fleiri en einni kynslóð. Margt eldra fólk býr í stórum íbúðum eða einbýlishúsum sem voru byggð utan um þarfir fjölskyldunnar þegar börnin voru heima. En hvert á fólk að flytja ef það vill minnka við sig? Við þurfum að skapa aðlaðandi 60+ íbúðakjarna með sjálfstæðum íbúðum, sameiginlegri aðstöðu, hreyfingu, menningu, gróðri, félagslífi og fjölbreyttri þjónustu sem hægt er að bæta við eftir þörfum. Ekki stofnun eða hefðbundið „elliheimili“. Heldur stað sem fólk vill flytja á vegna þess að þar geta lífsgæðin orðið meiri. Það hjálpar einnig ungu fjölskyldunni. Ef eldra fólk fær raunverulegan og aðlaðandi valkost getur það kosið að losa fyrr stórar fjölskylduíbúðir. Þær koma aftur inn á húsnæðismarkaðinn og ungar fjölskyldur fá fleiri valkosti. Eldra fólk fær húsnæði sem hentar betur þörfum þeirra. Þarna sjáum við hvað gæti gerist þegar við hættum að vinna í samfélagsmálum í aðskildum kössum og förum að hugsa um samfélagið sem eina heild. Mannréttindi alla ævi Evrópusamstarfið byggir meðal annars á mannlegri reisn, frelsi, jafnrétti og mannréttindum. Þeim réttindum þarf að viðhalda þó við verðum 67, 75 eða 85 ára. Sjálfsákvörðunarréttur skiptir jafnvel enn meira máli þegar við verðum háðari öðrum. ·Get ég valið hvar ég bý? ·Get ég stjórnað eigin lífi? ·Get ég tekið þátt í samfélaginu? ·Get ég fengið aðstoð án þess að missa sjálfstæði mitt? ·Get ég áfram lifað – en ekki aðeins fengið þjónustu? Þarna þurfa mannréttindi og öldrunarstefna að mætast. Af hverju ekki að þróa lausnirnar með Evrópu? Evrópuþjóðirnar þurfa allar að takast á við þessa þróun. Þar verða til nýjar lausnir í húsnæði, heimastuðningi, heilbrigðisþjónustu, velferðartækni, endurhæfingu, félagslegri þátttöku og vörnum gegn einmanaleika. Í stað þess að Ísland reyni að finna allar lausnirnar eitt, eigum við að kanna hvernig íslensk sveitarfélög, þjónustufyrirtæki, háskólar, frumkvöðlar og félagasamtök geta orðið enn virkari þátttakendur í evrópsku samstarfi. Við eigum ekki bara að sækja peninga. Við eigum að sækja þekkingu, samstarf og reynslu – og leggja okkar eigin hugmyndir inn í samstarfið. Mjög líklega getur Ísland, vegna smæðar sinnar, orðið sérstaklega gott tilraunaland fyrir nýjar lausnir í öldrunarmálum og breytingum sem þjónustusamfélag kallar eftir. Getur Ísland orðið fyrirmynd? Hugsum okkur Ísland þar sem fólk fær fyrr stuðning til að halda sjálfstæði sínu. Þar sem fjölbreytt 60+ húsnæði er eðlilegur hluti húsnæðismarkaðarins. Þar sem tæknin styður fólk um leið og við leggjum áherslu á mannleg samskipti. ·Þar sem við vinnum markvisst gegn einmanaleika. ·Þar sem fólk fær að vera virkir þátttakendur í samfélaginu alla ævi. ·Þar sem góð öldrunarstefna hjálpar um leið ungum fjölskyldum, heilbrigðiskerfinu og húsnæðismarkaðnum. Góð öldrunarstefna er ekki aðeins stefna fyrir eldra fólk. Hún er stefna fyrir allar kynslóðir. Við getum ekki stöðvað breytta aldurssamsetningu. En við þurfum að finna bestu lausnir til að mæta henni. Verkefnin eru það stórt að við getum illa leyst þau ein. Væri ekki skynsamlegt að kanna hvort enn nánara samstarf við Evrópu gæti hjálpað okkur að byggja þjónustusamfélag þar sem markmiðið er að bæta fleiri gæðaárum við lífið? Höfundur er viðskiptafræðingur og MS í stjórnun og stefnumótun. Situr í stjórn öldrunarráðs Viðreisnar og kennari Qigong lífsorkuæfinga – lifsraekt.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Eldri borgarar Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar