Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 14:41 Helgi Selja og Andri Freyr rifjuðu viðskipti sín við rússneska togarasjómenn. Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur.
Andri og Helgi eru fyrstu viðmælendur sex þátta seríunnar Milli vina þar sem tveir einstaklingar, sem tengjast persónulega, eiga einlægt samtal í hlýlegu heimilisumhverfi. Enginn þáttastjórnandi stýrir umræðunni heldur þróast samtalið á eðlilegan hátt og er útkoman náttúruleg, hlý og jafnvel djúp samtöl. Andri og Helgi rifjuðu upp nokkur prakkarastrik í þættinum, þar á meðal stórfelld vöruskipti við rússneska togarasjómenn á tíunda áratugnum. „Manstu þegar Rússatogarinn kom. Þá vorum við alveg frumkvöðlar í viðskiptum Íslands og Rússlands,“ rifjaði Helgi upp í þættinum. „Einmitt, það er rétt,“ svaraði Andri. „Þeir komu og það fór enginn þarna inn á bryggjuna en við fórum og byrjuðum á að skipta við þá og fengum sígarettur. Við ætluðum að setja upp svona sígarettumarkað,“ sagði Helgi þá. „Við löbbuðum nú á milli húsa, kallinn minn, með fullan poka af sígarettukartonum og seldum karton,“ bætti Andri við. „Þeir tóku allt sem fór batterí í eða fór í samband. Maður lét þá einu sinni hafa staka talstöð, leikfangatalstöð, og það var bara karton fyrir hana.“ „Við tókum fullt af gömlum leikföngum og fórum með til þeirra. Þetta var bara eins og gull fyrir þá náttúrulega. Þetta voru skemmtilegir kallar, helvíti hressir,“ sagði Helgi að lokum um Rússana.
Rússland Fjarðabyggð Milli vina Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Sjá meira