Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. október 2026 08:00 Það er ekkert langt síðan sólbrúnka komst í tísku. Lengst af þótti flottara að vera föl og helst hvít í framan. Fyrirsætur neituðu að klæðast fyrsta nútímabikiníinu 1946 sem enginn er feimin við í dag. Á Íslandi gleður fátt landann jafn mikið og góður sólardagur. Vísir/Anton Brink (th) Við tengjum sólbrúnkuna svolítið við að líta vel út; vera útitekin, hraustleg, geisla jafnvel aðeins. Svo sæl og ánægð eftir sólbaðið.
Eða brúnkukremið. Nú eða ljósabekkina… Það að að vera sólbrún þótti nú samt lengst af ekkert smart. Að minnsta kosti lagði aðallinn í Evrópu það á sig að nota hvítt andlitspúður og snyrtivörur til að ýkja hvíta fölvann sem var svo eftirsóttur. Hvað breyttist? Varð óvart brún Ástæðan fyrir því að yfirstéttin í Evrópu lagði svo mikla áherslu á föla og hvíta húð öldum saman var einfaldlega þessi: Að vera sólbrún eða útitekin gaf til kynna að viðkomandi ynni úti. Við landbúnað, sjómennsku eða aðra líkamlega vinnu. Í sumum samfélögum tengdist dekkri húð einnig lægri samfélagsstöðu: Þrælum. Hvíta andlitspúðrið varð því sérstaklega vinsælt hjá evrópsku yfirstéttinni á 17. og 18. öld. Og það þótt sumar vörurnar væru nánast baneitraðar: Innihéldu blý sem gat valdið alvarlegum eitrunum. Þá, eins og nú, var fólk hins vegar til í að leggja ýmislegt á sig fyrir útlitið. Kvikmyndin Dangerous Liaisons (1988) hlaut Óskarinn, meðal annars fyrir búninga og leikmynd en í þeirri mynd má vel sjá hversu eftirsótt föl húð var hjá evrópska aðlinum. Hér mynd af Glenn Close og John Malkovich í hlutverki franska aðalsins. En förum nú um hundrað ár aftur í tímann. Nánar tiltekið árið 1923. Coco Chanel var þá fertug og þegar orðin gríðarlega áhrifamikil í tískuheiminum. En búin að brjóta niður ýmis gömul viðmið um það hvernig fínar konur ættu að líta út og klæða sig. Coco Chanel boðaði nýja tíma: Smart konur í einfaldari fötum, sýndu meira línurnar, jafnvel með styttra hár og yfirhöfuð konur sem lifðu lífstíl mun sjálfstæðari kvenna en fyrri viðmið höfðu áður boðað. Sumarið 1923 er Coco Chanel síðan á siglingu við frönsku Riveríuna. Í viðtölum síðar sagði hún um ferðina að hún hefði reyndar fengið meiri sól en hún ætlaði sér í þessari ferð. Enda var hún sólbrún og sæt þegar hún kom til baka. Chanel steig frá borði í Cannes í Frakklandi. Við höfnina biðu ljósmyndarar, æstir í að mynda fræga fólkið þá eins og nú. Sólbrúnka Chanel fór ekki fram hjá neinum. Seinna lýsti Vogue því í umfjöllun hjá sér hvernig þessi ferð Chanel varð í raun til þess að sólbrúnkan varð að nýju tískufyrirbrigði. Bylgja sem breytti miklu Fyrir fyrri heimsstyrjöldina hafði ríka fólkið í Norður-Evrópu sótt frönsku ríveríuna heim sem vetrardvalarstað. Fólk vildi njóta mildara loftslags en þó ekki yfir sumartímann þegar heitast var. Hvað þá að liggja þá hálfnakið og baka sig í sólinni! Á þriðja áratugnum breytist þetta. Staðir eins og Cannes, Antibes, Jual-les-Pins og Saint-Tropez verða smám saman staðir þar sem ríka og fræga fólkið fer að sjást á ströndinni. Sumsé: Sólbrúnkan var nú komin í tísku! Mjög skemmtileg innsýn í þennan tíma er serían Summer36 sem nú má finna á Netflix. Í henni má sjá hvernig ríka fólkið er að aðlaga sig þessum sólar- og sumarferðum. Nýjar vörur að koma inn á markaðinn sem algjörar byltingar: sólvarnir og sólarolíur! Varnir gegn sólinni voru þó í reynd ekki markmið fyrr en á fjórða áratugnum. Þegar nýjar vörur bætast við í flóruna, til dæmis frá L‘Oréal sem kom með sína fyrstu sólvörnina sína á markað, Ambre Solaire, árið 1935 og var raunverulega ætlað að vernda húðina. Ekki þannig að fólk yrði ekki sólbrúnt heldur var kremið sagt tryggja að fólk fengi fallegri brúnku. Í áðurnefndri Netflix-seríu má sjá áhrifin sem urðu í Frakklandi þegar verkafólk fékk sín fyrstu launuðu sumarfrí. Því það sem breyttist við þau var að frí á ströndinni var ekki lengur eitthvað sem aðeins ríka og fræga fólkið gat leyft sér. Heldur allir hinir líka! Það sem áður þótti merki um að þú þyrftir að vinna mikið og værir verkamaður eða af lægri samfélagsstéttum var nú orðið að flottri sólbrúnku sem staðfesti að þú gast leyft þér að fara í gott frí og sóla þig. Ekkert ólíkt því sem við þekkjum enn í dag. Summer '36 serían á Netflix gefur góða innsýn í það þegar evrópski aðallinn var að aðlagast því að fara í sumar- og sólarfrí. Því lengst af fór yfirstéttin til frönsku riveríunnar til vetrardvalarstaðar. Sólvarnir og fleira koma við sögu í þáttunum. Fyrsta bikiníið og djúpbrúnkan Við hlaupum hratt yfir næstu áratugi. Þó er gaman að minnast á að fyrsta bikiníið kom á markaðinn árið 1946 og á sjöunda og áttunda áratugnum var sólbrúnka orðin svo eftirsótt að nú var sóst í það sem kallaðist djúp-brúnka. Sem líkja má við ofurbrúnku! Það sem hafði þá bæst við var að djúp, bronslituð brúnka varð að eftirsóttu útliti. Sem snyrtivöruiðnaðurinn hjálpaði til með því á þessum tíma komu á markaðinn fyrstu sjálfbrúnkuvörurnar. Tíðarandinn gat verið ansi ýktur á þessum tíma. Þar sem ekki þótti nóg að vera bara útitekinn og brúnn eftir sólina, heldur þótti það enn flottara ef húðin var mjög dökk og bronslituð, svo ekki sé talað um áberandi augnförðun og mikið af maskara sem þóttu afar smart á þessum tíma. Fyrsta nútímabikiníið var kynnt af Louis Réard 5.júlí 1946 en það þótti svo efnislítið að venjulegar fyrirsætur neituðu að klæðast því. Úr varð að dansarinn Micheline Bernardini tók að sér að sitja fyrir á myndum en til hægri má sjá bronsbrúnku eins og hún þótti hvað flottust: Leikkonan Farrah Fawsett. Ljósabekkirnir slá í gegn! Eins og oft gerist með nýjungar verða þær nánast óvart til. Þannig varð það með vinsældir ljósabekkjanna, en upphaflega var ljósabekkurinn hannaður með útfjólubláu ljósi sem liður í ljósameðferð fyrir íþróttafólk. Þýski vísindamaðurinn Friedrich Wolff hannaði ljósið og fljótlega kom í ljós aukaverkun sem vakti athygli: Fólk varð brúnt! Wolff áttaði sig strax á viðskiptatækifærinu, byrjaði að framleiða og selja ljósabekki með bróður sínum árið 1975 og árið 1977 opnaði fyrsta ljósabekkjarstofan í Berlín. Í Bretlandi fóru ljósabekkirnir að njóta vinsælda frá 1978 og það verður að segjast að Ísland var líka snemma að kveikja á perunni. Eða réttara sagt: UV-ljósinu! Í Morgunblaðinu 29. júní 1980 birtist auglýsing fyrir Ljósastofu JSB þar sem stendur: NÝTT – NÝTT – NÝTT Það þótti allra meina bót að skella sér í ljós þegar ljósabekkirnir slógu fyrst í gegn. Enda voru ljósin talin skaðlaus fyrstu árin. Hér má sjá texta sem birtist í auglýsingu ljósastofu JSB 6.september 1980 í Vísi. Þann 6. september 1980 birtist sambærileg auglýsing í Vísi fyrir Ljósastofu JSB. Ávinningur ljósatímanna – fyrir dömur og herra – var þá útskýrður nánar og meðal annars sagður felast í því að losa fólk við gigt og vöðvabólgu, fá vítamín í kroppinn, laga bólótta húð, losna við auma fituhnúða, halda psoriasis og exemi í skefjum og síðast en ekki síst: Að verða brún! Svo það sé svo sem nefnt hér líka, má benda á að ljós höfðu verið notuð töluvert fyrr í lækningaskyni. En segja má að þessi brúnkumenning hafi tekið á sig nýja mynd um og upp úr 1980. Enda gætu heilu árgangarnir staðfest að varla gengu fermingarbörnin upp að altarinu næstu árin á eftir, nema búið væri að klára að minnsta kosti tíu ljósatíma fyrir stóra daginn! Eins og skólatöskur í framan! Næstu árin á eftir poppuðu upp ljósastofur á Íslandi eins og enginn væri morgundagurinn. Meira að segja smæstu sjávarpláss og þorp á landsbyggðinni fjárfestu í ljósabekkjum og vart fannst staður þar sem ekki var hægt að skella sér í ljós. En sælan fór brátt að dala. Því á níunda og tíunda áratugnum fóru vísindalegar áhyggjur að heyrast af útfjólublárri geislun og fjölgun húðkrabbameinstilfella. Landlæknisembættið lagði til að ljósabekkir yrðu bannaðir fólki undir 18 ára. Það bann tók gildi árið 2011 en þó náðist ekki pólitísk samstaða fyrstu árin. Fyrrum aðstoðarlandlæknir, Matthías Halldórsson, var meðal þeirra sem voru ekki sáttir við að krakkar gætu enn sótt ljósin og vísaði þá til þess að fyrst og fremst hefði vantað á pólitískan vilja. Í frétt á Vísi þann 13. október 2005 segir: „Hann segir unga krakka ekki skilja nægilega vel hvað felist í húðkrabbameini. Húðin verði „ljót og hrukkótt og þeir sem eru lengi í sól verða eins og skólatöskur í framan,“ segir Matthías.“ Stóra höggið fyrir þá sem voru í bissness með ljósabekki kom þó ekki fyrr en árið 2009. Því það árið varð mjög afgerandi breyting á alþjóðlegri umræðu þegar Alþjóðakrabbameinsrannsóknarstofnunin IARC – sem heyrir undir WHO – flokkaði UV-geislun frá ljósabekkjum sem krabbameinsvaldandi. Hinn kunni blaðamaður, Atli Steinn Guðmundsson, skrifaði þá frétt um málið á Vísi. Þar sem einfaldlega segir: Ljósabekkir ávísun á húðkrabba Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta var. Og þó. Því sólbrúnka virðist enn í tísku og er mjög eftirsótt. Sjálfbrúnkukrem seljast sem aldrei fyrr, sólarferðir eru vinsælar um allan heim og enn er frekar stuðst við að það að vera svolítið sólbrúnn sé merki um hreysti frekar en hitt. Virðist þó að hluta til enn versna í því. Því svo eftirsótt er sólbrúnkan að fólk er jafnvel að leitast við að kaupa ólögleg og stórhættuleg efni til að sprauta sig með, til að verða brúnni. Í sjónvarpsfrétt Sýnar í vor segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir í viðtali við Elísabetu Ingu fréttamann að þótt nýrnabilun og heilabjúgur geti verið meðal aukaverkana á ólöglega peptíðlyfinu Meló séu foreldrar jafnvel að kaupa lyfið fyrir börn sín og vini þeirra. Sem Jenna Huld telur skýrast af fleiri þáttum en sólbrúnkunni eftirsóttu. „Þú færð ógleði og minnkar þannig matarlystin þannig að þú getir grennst og svo á kynhvötin að verða meiri,“ segir Jenna Huld sem dæmi um aukaverkanir sem virðast gera lyfið jafnvel enn eftirsóknarverðara en ella. Sólvarnarmálin og tískan Það gleður íslenska þjóð fátt jafn mikið og gott veður. Samfélagið lyftist upp. Þjóðin verður einfaldlega hamingjusamari. En það þarf að læra betur á sólvarnir segja læknar. Í sjónvarpsfréttum Sýnar vorið 2005 ræðir Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður við Elísabetu Reykdal, húð- og kynsjúkdómalækni, sem segir Íslendinga þurfa að nota meira af sólvörnum og oftar. Í sömu frétt ræðir Lillý líka við Sunnu Kristínu Hannesdóttur, sérnámslækni í húðlækningum, sem segir: „Fólk notar of þunnt lag en maður þarf að nota dálítið vel af vörunni til þess að hún skili tilskyldum árangri.“ Sunna segir fólk auðvitað eiga að njóta sólarinnar. En læra að nota réttar vörur á réttan hátt, enda geti það komið í veg fyrir skaðsemi allt að 97% geislanna. Því eitt af því sem er svo áhugavert við sólbrúnkutískuna er að hún hefur áhrif á öldrun húðarinnar og ef eitthvað er hefur baráttan gegn aldrinum aldrei verið jafn sýnileg í útlitsdýrkun og nú. „Eitthvað sem margir vita ekki er að áttatíu prósent af öldrun húðarinnar, hrukkur og svona, er tengd sólinni,“ segir Elísabet Reykdal læknir til dæmis í viðtali við Reykjavík síðdegis nú í sumar. En þrátt fyrir allt virðast vinsældir sólbrúnkunnar frekar vera að sækja í sig veðrið frekar en hitt. Í það minnsta segir í fyrirsögn á Vísi í sumar: Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Kannski að sólbrúnkan þyki einfaldlega enn jafn smart? Helstu heimildir: A Short Cultural History of the Tan Line Sience Museum: The story of sun cream National Library of Medicine: The Rise and Fall of The Sunbed in Britain IARC - WHO: Sunbeds and UV Radiation Vísir.is
Tíska og hönnun Heilsa Skemmtilega söguhornið Tengdar fréttir Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Lastu fyrirsögnina tvisvar áður en þú skildir hana? Því getur það virkilega verið að sú hefð að konur fæði börn oftast nær liggjandi á bakinu, sé fyrir karlmenn frekar en konur? 8. apríl 2026 07:04 Mest lesið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fleiri fréttir Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Lastu fyrirsögnina tvisvar áður en þú skildir hana? Því getur það virkilega verið að sú hefð að konur fæði börn oftast nær liggjandi á bakinu, sé fyrir karlmenn frekar en konur? 8. apríl 2026 07:04