Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar 20. ágúst 2026 09:47 Menn hafa rætt svolítið um hversu vel Íslendingum hefur gengið í lífsgæðakapphlaupinu undanfarið, meðal annars í tengslum við ESB umræðuna. Í hita átaka hafa staðreyndir þó stundum frarið afvega og skáldskapur tekið við. Mikið hefur borið á þessu í umræðum um kaupmátt almennings á Íslandi og í Evrópuríkjunum. Sumir segja að í Evrópu sé nær enginn hagvöxtur og laun lág eða í öllu falli lægri en á Íslandi. Þar hafi kaupmáttur ekkert batnað lengi. Aðrir halda að Ísland sé með mesta kaupmátt í heimi þrátt fyrir að verðlag hér sé það hæsta sem mælist (sjá hér) og vextir og leiga séu einnig í allra hæstu hæðum. Margar villandi staðhæfingar hafa farið á flug. En það eru til vandaðar mælingar á kaupmætti ráðstöfunartekna á mann. Þær mælingar segja allt sem segja þarf um stöðu Íslands og annarra Evrópuþjóða í lífsgæðakapphlaupinu, hversu vel tekjur duga fyrir framfærslunni hjá meðaltekjufólki í hverju landi fyrir sig. Hagstofur Evrópuþjóða vinna saman að gagnaöflun á þessu sviði og nota lífskjarakannanir og tekjur úr skattframtölum til að fá endanlegar niðurstöður um kaupmáttinn. Á myndinni hér að neðan má sjá niðurstöður úr árlegum mælingum á kaupmættinum frá 2014 til 2024 (heimild: Eurostat). Sýnd er upphæð kaupmáttar á föstu verðlagi frá ári til árs í hverju landanna. Á myndinni eru einungis þær 12 þjóðir sem hafa hæsta kaupmáttinn í Evrópu og er þeim raðað eftir kaupmáttarstiginu á síðasta árinu (2024). Þetta er Meistaradeildin í kaupmáttarkeppninni. Kaupmáttur ráðstöfunartekna endurspeglar samanlögð heildarlaun og aðrar tekjur einstaklinga í viðkomandi landi, að viðbættum greiðslum úr velferðarkerfum, en að frádregnum beinum sköttum. Síðan er leiðrétt vegna mismunandi verðlags í löndunum til að tryggja sambærileika milli þeirra. Þetta er besta mælingin á efnahagslegum lífskjörum þjóða. Ísland er í 9. sæti Þarna má strax sjá að Ísland er með 9. hæsta kaupmáttinn í Evrópu á árinu 2024 (dekkstu súlurnar fyrir hvert land). Ef við hins vegar berum saman fyrstu súlurnar í hverju landi fyrir sig, sem eru fyrir árið 2014, þá má sjá að Ísland var á því ári með lægsta kaupmátt ráðstöfunartekna í þessum hópi þjóða. Það er vegna þess að kaupmátturinn lækkaði meira á Íslandi en hjá flestum öðrum Evrópuþjóðum í fjármálakreppunni 2008-2009. Við vorum því neðar í röðinni á árinu 2014 en nú er. Kaupmátturinn jókst hins vegar hratt hjá okkur frá og með árinu 2015, fyrir tilstilli verkalýðshreyfingarinnar. Atvinnurekendur og Seðlabankamenn virðast telja að sá vöxtur hafi verið of hraður, en hann hefur þó einungis skilað okkur í 9. sætið, sem er rétt fyrir ofan meðaltal Evru-þjóðanna allra. Ég tel að meira en næg innistæða hafi verið fyrir þessum vexti á Íslandi, enda var atvinnulífið í blóma á þessum tíma. En segja má að þetta sé góður árangur. Ísland er í 9. sæti af þeim 12 hæstu. Talsvert meira þarf þó til að Íslandi komist í úrslit og nái hæsta kaupmættinum í Evrópu. Lúxemborg er með hæsta kaupmátt ráðstöfunartekna á mann í Evrópu og kaupmáttur þeirra er nú um 31% hærri en hjá okkur Íslendingum. Næstir í röðinni eru Þjóðverjar, svo Svisslendingar, Hollendingar og Austurríkismenn. Þá koma frændur okkar Norðmenn. Belgar og Frakkar eru einnig ofar en Íslendingar. Neðstu þjóðirnar í Meistaradeildinni (Danir, Finnar og Svíar) voru með meiri kaupmátt en Ísland árið 2014 en eru nú lægri en við. Við fórum framúr þeim. Munur á okkur og Svíum í neðsta sætinu er þó ekki sérlega mikill, eða um 8%. Um 20 aðrar Evrópu-þjóðir eru neðar, þ.e. þær ná ekki inn í Meistaradeildina. Breytingar yfir tíma Margt fleira má lesa út úr þessari mynd. Þau sem halda að engar efnahagslegar framfarir hafi verið í Evrópu á síðustu árum geta séð hér að í flestum löndunum hefur kaupmáttur vaxið nokkuð jafnt og þétt frá ári til árs. Í sumum landanna hægði á árið 2020, í Kóvid kreppunni (bláu súlurnar á myndinni). Svisslendingar, í þriðja efsta sætinu, eru undantekning. Þeir nutu ekki kaupmáttaraukningar á árunum 2014 til 2020, sem er óvenjulegt, en eftir það tók við ör aukning. Sviss fór úr öðru sæti í það þriðja á tímabilinu vegna þessa. Meðaltals kaupmáttur Evru-þjóðanna í heild hækkaði öll árin að raunvirði, nema árið 2020. Vöxturinn á Íslandi hefur verið hraðari en meðaltal Evru-þjóðanna. Við vorum þó einungis með um 2,8% hærri kaupmátt en þær þjóðir að meðaltali á árinu 2024. Sumar Evru-þjóðanna eru með talsvert lægri kaupmátt en við (t.d. Spánverjar, Grikkir, Ítalir og þjóðirnar á austur jaðri ESB) og aðrar eru hærri en við (t.d. Lúxemborgarar, Þjóðverjar, Hollendingar, Austurríkismenn, Belgar og Frakkar). Þjóðir sem nota Evruna ná mismunandi árangri. Ísland er ekki með hæsta kaupmáttinn í Evrópu og Evru-þjóðirnar eru ekki allar í annarri deild, eins og fullyrt hefur verið! Ísland er þó með ágætis kaupmátt og á alveg heima í Meistaradeild kaupmáttarkeppninnar. Til að ná hærra á stigatöflunni þyrftum við að fá evrópska vexti, lægra verðlag og/eða hærra launastig. Vonandi nýtast þessar upplýsingar til þess að bæta gæði umræðunnar um þessi mál. Höfundur er prófessor emeritus við HÍ. Hann er með doktorspróf í lífskjara- og velferðarrannsóknum frá Oxford háskóla í Englandi og hefur skrifað mikinn fjölda bóka, greina og skýrslna um þetta efni á löngum starfsferli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar