Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar 20. ágúst 2026 16:15 Ísland hefur frá stofnun lýðveldisins árið 1944 ávallt verið opið fyrir alþjóðlegu samstarfi og allir lýðræðisflokkar landsins verið sammála um það í gegnum tíðina. Það hefur verið grundvöllur íslenskrar utanríkisstefnu í 80 ár. Þetta á við um aðild að SÞ, NATO, EFTA og EES sem rík samstaða er um milli allra stjórnmálaflokka í dag þrátt fyrir einhverjar flokkspólitískar deilur á sínum tíma. Þjóðaratkvæðagreiðslan um að segja já eða nei við að hefja aðildarviðræður við ESB snýst um að skoða samningsniðurstöður þá og ef samningar nást. Það er hins vegar ekki sjálfgefið. Helstu samningsmarkmið Íslands í þeim viðræðum eru í stuttu máli: • Óskorað forræði Íslands yfir náttúruauðlindum landsins. • Að Ísland hafi fullt forræði yfir sjávarauðlindinni og óskoraðan rétt til að stýra sókn í veiðistofna byggðri á sjálfbærri nýtingu, ráðgjöf sérfræðinga og veiðireynslu. • Að Ísland muni alltaf eiga beina aðild að ákvörðunum um skiptingu veiða á deilistofnum sem veiðast í íslenskri landhelgi eða kunna að verða það. • Að á Íslandi verði stundaður landbúnaður sem tryggi fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar og jafnvægi í byggð landsins til framtíðar. Með aðild að ESB opnast möguleikinn á að Ísland verði aðili að evrusvæðinu. Reynsla þeirra ríkja sem urðu aðilar að svæðinu í upphafi og síðar bættust við sýnir með mjög sterkum líkum að verði vextir og verðbólga þá marktækt hærri á Íslandi en á evrusvæðinu muni þau lækka eftir að ákvörðun um inngöngu á svæðið liggur fyrir. Það yrði til mikilla hagsbóta. Varðandi möguleg neikvæð áhrif þess að þá verði ekki hægt að beita sjálfstæðri peningastefnu til mótvægis við áföll er rétt er að vekja sérstaka athygli á því að nú þegar er 70% fylgni í hagsveiflum milli Íslands og evrusvæðisins skv. skýrslu erlendra sérfræðinga fyrir fjármálaráðuneytið frá 29. maí sl. um valkosti Íslands í gjaldeyrismálum. Þetta er grundvallarbreyting frá þeim tíma þegar Ísland var einhæft fiskveiðihagkerfi. Aðild að myntbandalagi ESB fylgir einnig aðgangur án gengisáhættu að næststærsta fjármálamarkaði heimsins sem mun lækka viðskiptakostnað íslenskra fyrirtækja. Einnig mun Seðlabanki Evrópu sjá um eftirlit með stóru íslensku bönkunum og vera í raun lánveitandi þeirra til þrautarvara. Allt þetta gerir mögulegt að koma á lánakerfi án verðtryggingar og með lægra vaxtastigi til frambúðar. Fyrir ungu kynslóðina á Íslandi yrði þetta mikil breyting til batnaðar. Spurningin er því einföld: Vilt þú svara því játandi að þetta verði kannað? Ég er þeirrar skoðunar að það sé í samræmi við íslenska lýðræðishefð frá stofnun lýðveldisins 1944 og grundvallarstefnu okkar í utanríkismálum allt frá þeim tíma að við segjum já. Endanleg ákvörðun um mögulega inngöngu Íslands í ESB er síðan síðari tíma ákvörðun, og þá í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, en aðeins þegar og ef viðunandi samningar nást að mati stjórnvalda. Lýðræðislegra getur það ekki orðið. Að segja nei er að mínu mati ávísun á óbreytt ástand. Hver vill það? Með því sláum við einnig á útrétta hönd Evrópuþjóða, þ.a.m. þriggja frændþjóða okkar á Norðurlöndum, á mjög viðsjárverðum tímum þegar alþjóðakerfið er í uppnámi og venjur og hefðir í samskiptum þjóða eru ekki lengur virtar af stærsta lýðræðisríki heims. Hvert sú þróun leiðir getur enginn sagt um með vissu á þessari stundu, en áframhaldandi lítilsvirðing Bandaríkjanna á fullveldi annarra þjóða og ófyrirsjáanleiki í samskiptum við rótgrónar vina- og bandalagsþjóðir og jafnvel næstu nágranna er vægast sagt alvarlegt umhugsunarefni. Reykjavík 20. ágúst 2026 Höfundur var stjórnarformaður Marel hf.1983-1988 og efnahagsráðgjafi Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra 1988-1990 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar