Lífið

Guð­mundur Felix frum­sýnir nýja nefið

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Guðmundur árið 2021 þegar hann kom til Íslands í fyrsta sinn eftir að hafa fengið grædda á sig handleggi.
Guðmundur árið 2021 þegar hann kom til Íslands í fyrsta sinn eftir að hafa fengið grædda á sig handleggi. Vísir/Vilhelm

Guðmundur Felix Grétarsson birti fyrstu myndina af sér eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð í Frakklandi. Hann greindist nýverið með krabbamein í nefi.

Myndina birti hann á Instagram en þar er hann með sáraumbúðir um bólgið nefið.

Myndina tók hann eftir aðgerðina.Skjáskot

Aðgerðin fór fram í Normandí í Frakklandi en á dögunum birti Guðmundur Felix myndband af sér þar sem hann sýndi frá ferðalaginu til Normandí.

Hann sagði biðina eftir niðurstöðum úr rannsókn á meininu hafa verið einhverjar erfiðustu vikur sem hann man eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.