Innherji

Telja vand­ræði keppi­nautar styrkja stöðu Al­vot­ech á markaði með Simponi

Hörður Ægisson skrifar
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Til að ná neðri mörkum útistandandi tekjuspár Alvotech þurfa tekjur síðari árshelmingsins að nema að minnsta kosti 438 milljónum dala, eða ríflega tvöföldum tekjum á fyrstu sex mánuðum ársins.
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Til að ná neðri mörkum útistandandi tekjuspár Alvotech þurfa tekjur síðari árshelmingsins að nema að minnsta kosti 438 milljónum dala, eða ríflega tvöföldum tekjum á fyrstu sex mánuðum ársins. Aðsend og Vísir/Vilhelm

Stjórnendur Alvotech telja félagið vel í stakk búið til að nýta sér þá stöðu sem komin er upp á markaði fyrir hliðstæður við gigtarlyfið Simponi í kjölfar vandræða kínverska keppinautarins Bio-Thera. Markaðshlutdeild hliðstæðulyfs Alvotech við Simponi er þegar komin yfir 15 prósent í Evrópu og félagið hefur byggt upp nægar birgðir til að mæta aukinni eftirspurn út árið og inn í 2027.


Tengdar fréttir

Hækka verðmatið og segja Simponi geta orðið „vendi­punktur“ fyrir Al­vot­ech

Alvotech gæti séð fram á „verulegan ávinning“ eftir að samkeppnisstaðan á markaði fyrir hliðstæðulyf við Simponi hefur breyst félaginu í hag, samkvæmt SEB, sem hefur hækkað verðmat sitt um nærri þriðjung. Greinendur sænska bankans búast við að sölutekjur verði dræmar á öðrum fjórðungi en veðja á að markaðurinn muni endurmeta hlutabréfaverð Alvotech til hækkunar á næstu tólf til átján mánuðum.

Vonast eftir aukinni veltu með inn­komu yfir þrjátíu nýrra er­lendra sjóða

Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×