Innlent

Búist við þungri um­ferð á fjöl­förnum gatna­mótum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar eru með þeim fjölförnustu á landinu.
Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar eru með þeim fjölförnustu á landinu. Vísir/Sigurjón

Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir.

Framkvæmdir hefjast við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar á næstu dögum. Beygjuvasar verða þá endurnýjaðir og þar settar hraðahindranir, svokallaðar upphækkaðar gönguþveranir.

„Það sem við erum að fara í er fyrst og fremst að bæta umferðaröryggi fyrir keyrandi, gangandi og hjólandi,“ segir Ylfa Rakel Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.

Ylfa Rakel Ólafsdóttir er verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.Vísir/Sigurjón

Búist er við því að umferð muni þyngjast verulega á svæðinu á framkvæmdatímanum. Einum vasa verður lokað í einu í um það bil viku hver og fólk beðið um að nota hjáleiðir á meðan.

„Það verður ekki hægt að beygja til hægri á framkvæmdatíma en við erum í rauninni ekkert að breyta beygjunni sjálfri. Hún verður óbreytt nema hærri, til að hægja á umferð,“ segir Ylfa. 

Hér má sjá svipaða hraðahindrun og settar verða upp á gatnamótunum. Vísir/Sigurjón

Svipaðar upphækkanir má finna víðar á höfuðborgarsvæðinu og segir Ylfa fólk almennt ánægt með þær. Hins vegar verði að sýna þolinmæði á framkvæmdatímanum sjálfum. Vegagerðin viti vel að skólarnir séu að byrja og umferð að þyngjast en það sé betra að klára framkvæmdirnar sem fyrst en að fresta þeim til næsta sumars.

„Þetta verður krefjandi og við áttum okkur alveg á því. Þetta er bara eitthvað sem við verðum að fara í,“ segir Ylfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×