Límmiðar lifðu ekki af nóttina Jón Þór Stefánsson skrifar 22. ágúst 2026 16:04 Til vinstri má sjá rúlluna eins og hún var í gær. Og til hægri eins og hún blasti við í morgun. „Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun. „
Þetta er inni á landareign minni. Fólk má gera það sem það vill í sínum garði, er það ekki?“ segir Frosti. „Ég veit náttúrulega ekki hvers vegna þetta var gert, en þetta er voða leiðinlegt. Þetta er afleiðing neikvæðarar umræðu um bændur. Bændasamtökin hafa verið með einsleitan áróður, en bændur eru auðvitað ekki allir á sama stað með þetta, ekkert frekar en smiðir, rafvirkjar eða sjómenn.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem verk sem þetta er unnið í kosningabaráttunni. Greint var frá því á Mbl.is á dögunum að límmiði, merktur „ESB, nei takk“ hafi verið tekinn af, og í staðinn krotað „Já til að sjá“. „Ég hef heyrt um þetta hjá báðum hópum, að það sé jafnvel verið að skemma rúllur líka. Maður nefnilega skemmir rúlluna ef maður sker gat á plastið. Fólk verður að geta lýst skoðun sinni án þess að eiga von á einhverju svona. Manni finnst þetta svolítið lágkúrulegt, hvorum megin sem það er.“ Hann hvetur áhrifafólk í umræðunni til að stilla henni í hóf. „Það á ekki að æsa fólk upp í einhverja vitleysu.“ Frosti ætlar ekki að láta þetta stoppa sig og hyggst hengja upp önnur eins skilaboð. „Ég mun halda baráttunni áfram að minni sannfæringu.“
Múlaþing Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira