Innlent

Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“

Freyja Þórisdóttir skrifar
Það er aragrúi viðburða fram undan á Menningarnótt 2026.
Það er aragrúi viðburða fram undan á Menningarnótt 2026. Vísir/Vilhelm

Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa.

Er þetta meðal þess sem fram kom í samtali blaðamanns og Jóhanns Karls Þórissonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en hann segist ekki vita til þess að nein vandræði hafi komið upp í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fór fram í dag, laugardaginn 22. ágúst.

Dagskráin gangi vel og allt skipulagt í þaula, enda hafi Menningarnótt verið haldin árlega síðan 1996 og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu því skipuð reynsluboltum sem hafi skipulagt daginn svo árum skipti.

„Þannig að það er ekkert að fara að klikka þar, vonandi verður fólk bara í góðu skapi,“ segir hann og nefnir að hann hafi ekki heyrt annað en að allir hafi virt götulokanir í miðbænum.

„Ég hef ekki heyrt annað. Allir glaðir,“ segir hann og bætir við að því miður sé ekkert sem lögregluembættið geti gert í því að ekki hafi ræst úr veðrinu en hann voni að fólk láti rigningu ekki fara um of í taugarnar á sér.


Tengdar fréttir

Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 

Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu

Yfir fimmtán þúsund keppendur skráðu sig í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins og hafa safnast tæpar þrjú hundruð milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér var fylgst með beinni útsendingu frá maraþoninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×