Enski boltinn

De Zerbi ó­sáttur: „Vorum ekki til­búnir að berjast“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Roberto De Zerbi niðurlútur á hliðarlínunni í leik Brentford og Tottenham.
Roberto De Zerbi niðurlútur á hliðarlínunni í leik Brentford og Tottenham. getty/Gaspafotos

Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, sagði að sínir menn hefðu ekki verið klárir í baráttuna gegn Brentford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Spurs tapaði leiknum, 3-0.

„Við áttum erfitt uppdráttar líkamlega en við vissum það fyrir leikinn. Við vorum ekki tilbúnir að berjast í einvígjunum. Við gerðum mörg mistök í tímasetningu pressunnar með Mikey Moore. Við vorum of oft seinir og töpuðum of mörgum einvígjum til að keppa við Brentford,“ sagði De Zerbi eftir leikinn.

„Ég er vonsvikinn með tapið. Ég veit að við þurfum að bæta líkamlegt ástand okkar og skipulagið. Það voru margir nýir leikmenn í dag en þetta var fyrsti leikurinn okkar. Þetta er hluti af vegferðinni okkar. Með marga nýja leikmenn vissum við að við þyrftum sál og leikstíl til að verða að liði. Í dag var sálin til staðar en við börðumst ekki á réttan hátt.“

Muna eftir síðasta tímabili

De Zerbi var spurður nánar út í það af hverju hans menn hefðu ekki verið tilbúnir í slaginn í dag.

„Ég hef trú á leikmönnum mínum. Sérstaklega í fyrri hálfleik vorum við ekki á réttum stöðum til að pressa rétt. Ef þú greinir leikinn sérðu hversu mörgum einvígjum við töpuðum í fyrri hálfleik þegar leikurinn snerist með Brentford,“ sagði De Zerbi.

„Við spiluðum ekki vel. Við börðumst ekki rétt. Ekki vegna þess að við mundum ekki eftir síðasta tímabili. Því þessir leikmenn eru góðir með gildi og minni. En við töpuðum of mörgum einvígjum.“

Getum ekki rifið allt niður

De Zerbi segir að ekki sé allt ómögulegt hjá Spurs þrátt fyrir tapið í dag.

„Við verðum að greina þennan leik. Við getum ekki rifið allt niður því við erum að vinna vel. Líkamlegt ástand er ekki það sama hjá öllum leikmönnum því margir þeirra byrjuðu tímabilið seinna,“ sagði De Zerbi.

„Ég vil ekki koma með afsakanir en við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Við þurfum að finna rétta baráttuandann en í dag var hann ekki til staðar. Ég bjóst vissulega við betri frammistöðu en ekki við þessum úrslitum en ég vissi hvaða vandamáli við myndum mæta í dag.“

De Zerbi tók við Spurs undir lok síðasta tímabils þar sem liðið bjargaði sér naumlega frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.

Á miðvikudaginn mætir Tottenham Charlton Athletic í 2. umferð deildabikarsins. Næsti deildarleikur liðsins er gegn Newcastle United á heimavelli laugardaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×