Steinn Ármann er látinn Jón Þór Stefánsson skrifar 23. ágúst 2026 08:02 Steinn Ármann lést á 62. aldursári. Vísir/Daníel Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Steins. Steinn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Hann vakti fyrst athygli á tíunda áratugnum sem annar helmingur Radíusbræðra, sem segja má að hafi rutt íslensku uppistandi braut á sínum tíma. Hann lék jafnframt á bassa með hljómsveitinni Kátum piltum frá Hafnarfirði. Steinn starfaði sem dagskrárgerðarmaður, fyrst á Aðalstöðinni og síðan á Bylgjunni þar sem hann var einn stjórnenda hinna vinsælu útvarpsþátta Radíus, Górillan og King Kong. Steinn lék í fjölda sjónvarpsþátta, leikrita og kvikmynda. Þar má nefna: Limbó, Radíus, Veggfóður, Áfram Latibær, Astrópíu, Stellu í framboði, Hross í oss, Vodkakúrnum og Ófærð. Hann lék einnig köttinn Kela í Stundinni okkar um árabil sem vann hug og hjörtu yngstu kynslóðarinnar auk annarra smærri hlutverka í ýmsu barnaefni. Hann var annar höfunda jóladagatalsins Klængur sniðugi ásamt Davíð Þór Jónssyni og skrifaði og lék í Trjálfunum ásamt Helgu Brögu Jónsdóttur. Þá þekkja íslenskir foreldrar og börn rödd Steins býsna vel, en hann hefur talsett ógrynni teiknimynda og barnaefnis undanfarin ár. Auk þessa starfaði hann um hríð í Reiðhjólaversluninni Erninum og var leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn á sumrin. Steinn lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni. Jarðarför hans verður auglýst síðar.
Andlát Leikhús Bíó og sjónvarp Hafnarfjörður Tengdar fréttir Reri á trillu með pabba Steinn Ármann Magnússon leikari er fimmtugur í dag. Hann ætlar að halda upp á það á sunnudaginn með fjölskyldu sinni og vinum – og að sjálfsögðu Elton John! 28. október 2014 11:00 Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira
Reri á trillu með pabba Steinn Ármann Magnússon leikari er fimmtugur í dag. Hann ætlar að halda upp á það á sunnudaginn með fjölskyldu sinni og vinum – og að sjálfsögðu Elton John! 28. október 2014 11:00