„Ætlar hann að segja já eða nei?“ Jón Þór Stefánsson skrifar 23. ágúst 2026 12:44 Guðni Th. Jóhannesson, starfar nú sem prófessor við Háskóla Íslands en var áður forseti Íslands. Vísir/Anton Brink „Nú er þetta aðeins að fara að verða eins og í frúinni í Hamborg: Ætlar hann að segja já eða nei?“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þar sem hann ræddi um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þar sagði hann að hann teldi það ekki endilega í sínum verkahring að gefa upp hvernig hann myndi greiða atkvæði um næstu helgi, þegar Íslendingar munu segja til um hvort hefja skuli á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Þú bauðst mér hingað af því að ég er prófessor í sagnfræði, og líka fyrrverandi forseti Íslands, og mér finnst að við sem höfum greiðari aðgang að hljóðnemanum, vegna þekkingar, reynslu og fyrri starfa, höfum vissa ábyrgð,“ sagði Guðni við Kolbein Tuma Daðason, sem stýrði Sprengisandi að þessu sinni. Viðtalið við Guðna má sjá í heild sinni hér að neðan. Hann ræddi einnig um atkvæðagreiðsluna í tengslum við fullveldið og sjávarauðlindina, en hann er, líkt og flestir vita, sérfróður um þau málefni. Guðni fór yfir það hvernig þjóðin hefur, í kringum atkvæðagreiðsluna, skipts í tvær fylkingar. „Við Íslendingar stöndum núna á tímamótum. Við þurfum að gera upp hug okkar. Miðað við andann í samfélaginu, jafnvel skoðanakannanir, og samtöl við fólk hér og þar og alls staðar, meira að segja á hlaupum í maraþoninu í gær, þá finnur maður að það eru ólík sjónarmið sem togast á. Þjóðin virðist vera nokkurn veginn svo að það séu tvær andstæðar fylkingar, og um það bil jafnar. En það þýðir ekki að helmingur þjóðarinnar séu hálfvitar og hinn helmingurinn snillingar. Við eigum að bera virðingu fyrir sjónarmiðum þeirra sem eru okkur ósammála. Það finnst mér hin fagra óvissa lífsins, að við höfum í okkar höndum að móta okkar framtíð. Það er ekki sjálfsagt.“ Jáið sé ekki skilyrðislaust Guðni fjallaði einnig um möguleikana tvo sem eru í boði, og þá sérstaklega já-möguleikann. Hann telur að verði sá kostur ofan á í atkvæðagreiðslunni þýði það ekki að Ísland ætli sér að ganga í Evrópusambandið, skilyrðislaust. „Ég verð að segja, að mér finnst ekki rétt að segja sem svo að núna í lok mánaðarins sé atkvæðagreiðsla um það hvort Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki. Auðvitað líta þau sem vilja segja nei svo á að þau séu að segja nei við því að ganga í ESB, og það er alveg hárrétt. En þau sem segja já eru ekki, þar með sagt, að lýsa yfir stuðningi við aðild að ESB, hvað sem það kostar. Þvert á móti. Viljinn er til þess að sjá hvað kunni að vera í boði,“ sagði Guðni. „Ég tek undir það sem nei-sinnarnir segja, að það er svo að þú ert að lýsa yfir áhuga á að ganga í sambandið, en ekki hvað sem það kostar. Um það snýst þessi atkvæðagreiðsla að mínu mati.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Guðni Th. Jóhannesson Sprengisandur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira