Formúla 1

Norris náði öðrum sigri

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Lando brunaði fram úr öllum undir lokin.
Lando brunaði fram úr öllum undir lokin. David Davies/PA Images via Getty Images

Lando Norris hjá McLaren stóð uppi sem sigurvegari í Formúlu 1 kappakstrinum í Hollandi. Hann hefur nú unnið tvær keppnir í röð og minnkað forystu Kimi Antonelli hjá Mercedes í efsta sæti heimslistans.

Það skiptist á skin og skúrum í Hollandi um helgina en brautin hélst þurr á meðan keppni stóð. Samt náðu sumir ökumenn ekki að hafa stjórn á sínum bílum, Max Verstappen snerist út af brautinni á fyrsta hring og fleiri áttu eftir að falla úr leik.

Kappaksturinn varð æsispennandi á köflum en Lando Norris náði að halda toppsætinu sem hann byrjaði í.

Kimi Antonelli fylgdi Norris fast eftir en varð á endanum ellefu sekúndum á eftir Norris. Hörð barátta var um þriðja sætið en George Russell hjá Mercedes náði að skáka Lewis Hamilton hjá Ferrari og komast á verðlaunapall.

Lando Norris hefur nú unnið tvær keppnir á tímabilinu. Hann fagnaði sínum fyrsta sigri í Ungverjalandi fyrir sumarfrí og mætti síðan vel stemmdur til Hollands eftir pásuna.

„Baráttan er ekki búin,“ sagði ríkjandi heimsmeistarinn eftir keppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×