Fótbolti

Ísak skoraði og klúðraði víti í ís­lenskum nýliðaslag

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ísak Snær var allt í öllu hjá Lyngby í dag. 
Ísak Snær var allt í öllu hjá Lyngby í dag.  Mynd: Lyngby BK

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði mark Lyngby en klúðraði líka vítaspyrnu í 2-1 tapi á útivelli gegn Horsens í nýliðaslag Íslendingaliðanna í 5. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

Guðlaugur Victor Pálsson byrjaði í hægri bakverði hjá Horsens, sem tóku forystuna á 15. mínútu leiks þökk sé Kelvin Ehibhatiomhan.

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði jöfnunarmark Lyngby á 66. mínútu eftir stórskemmtilega stoðsendingu Simon Colyn, sem reyndi að skjóta úr hjólhestaspyrnu. Skotið endaði sem sending á Ísak og hann afgreiddi auðvelt færi.

Ísak fékk tækifæri til að bæta öðru marki við þegar hann fiskaði vítaspyrnu á 70. mínútu. Ísak ákvað að taka spyrnuna sjálfur en hún var í markmannshæð og auðveldlega varin.

Horsens tvíefldist við vítavörsluna og blés til sóknar, sem skilaði sigurmarki á lokamínútu leiksins. Adrian Justinussen kom á ferðinni í uppbótartíma og tryggði Horsens 2-1 sigur.

Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af varamannabekk Lyngby í hálfleik og spilaði seinni hálfleikinn.

Lyngby hefur ekki enn unnið leik og situr næstneðst í dönsku deildinni en Horsens er með 7 stig að 5 umferðum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×