„Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. ágúst 2026 07:01 Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, náði sér ekki á strik gegn Hull City, ekki frekar en samherjar hans. getty/Molly Darlington Bjarni Guðjónsson og Kjartan Henry Finnbogason fóru yfir stöðuna á Manchester United í Messunni. Strákunum fannst tónninn í Bruno Fernandes, fyrirliða liðsins, í viðtali eftir leik ekki vera mjög uppörvandi fyrir stuðningsmenn Rauðu djöflanna.
United tapaði 2-0 fyrir nýliðum Hull City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. Bæði mörkin komu eftir föst leikatriði í fyrri hálfleik. „Þetta var eiginlega úti um allt. Vandamálin þeirra áttu sér eiginlega ekkert upphaf og engan endi,“ sagði Bjarni í Messu gærdagsins og fór svo yfir varnarleik United. Honum fannst ekki mikið til frammistöðu miðvarðarins unga, Aydens Heaven, í leiknum gegn Hull koma. „Hann var vægast sagt hræðilegur. Sjáum stöðuna á honum hérna. Hann snýr baki í [Oli] McBurnie sem stríddi honum allan leikinn. Hann veit aldrei bæði hvar boltinn er og maðurinn. Hérna sést það skýrast. Hann missir af McBurnie af því hann er að horfa á boltann og sleppir manninum,“ sagði Bjarni. Klippa: Messan - umræða um vandamál United Kjartan Henry tók aðeins upp hanskann fyrir Heaven og beindi athygli sinni að Luke Shaw. „Ég er alveg sammála því en hann er nítján ára gamall. Luke Shaw er búinn að vera þarna í tólf ár, er það ekki? Það er einhvern veginn alltaf sama holningin á honum, alltaf eitthvað tæpur og kemur síðan inn í þetta. Svo ertu með [Noussair] Mazraoui hinum megin. Með Harry Maguire, sem fékk ekki að fara á HM, en er einhvern veginn samt búinn að stíga upp sem einhver sigurvegari í þessu United-liði eða á sínum ferli allavega. Heaven var ekki sannfærandi en öll varnarlína Manchester United; þetta er bara skelfilegt,“ sagði Kjartan Henry. Honum fannst yfirbragð Fernandes í viðtali eftir leikinn ekki vera gott. „Þú sérð bara að fyrirliðinn sjálfur mætir í viðtal og það er ekki mikil trú, ekki mikil ára, kassinn er ekki úti. Hann er fyrirliði Manchester United og ég held að hann sé bara þreyttur á því að vera með Patrick Dorgu frammi,“ sagði Kjartan Henry. Miðjumennirnir Youri Tielemans og Andrey Santos spiluðu sinn fyrsta keppnisleik fyrir United á laugardaginn var. „Við höfum allavega séð til Tielmans að hann sé góður og hann var frábær á HM í sumar og er að öllu leyti góður leikmaður. Hann á eftir að sýna það hins vegar þarna. Þetta var ekki frábært hjá honum. En Santos hins vegar, ég hef aldrei séð neitt sem réttlætir það að hann sé bara orðinn sjálfkrafa sexa hjá United. Það er bara erfitt fyrir mig að sjá það,“ sagði Bjarni og kom aftur að viðtalinu við Fernandes. „Vandamálin þeirra eru bara úti um allan völl og það er rétt sem Kjartan segir. Fyrirliðinn fer í viðtal og eftir einn leik á þessu tímabili byrjar hann að draga inn öll skelfilegheitin sem fylgja þeim frá síðasta tímabili. Það er bara verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan.“ Í næstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar mætir United öðrum nýliðum, Ipswich Town, á Old Trafford. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United Messan Tengdar fréttir Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Tímabilið hefst stórkostlega hjá nýliðum Hull, með 2-0 sigri gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Semi Ajayi og Nobel Mendy skoruðu mörkin. 22. ágúst 2026 11:02 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira
Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Tímabilið hefst stórkostlega hjá nýliðum Hull, með 2-0 sigri gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Semi Ajayi og Nobel Mendy skoruðu mörkin. 22. ágúst 2026 11:02