Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar 24. ágúst 2026 07:46 Það er margt sem ég skil engan veginn varðandi kosninguna um aðildarviðræður við ESB þann 29. ágúst. Og þar sem ég er kjáni ákvað ég að deila nokkrum punktum fyrir aðra kjána. Fyrst er það þessi litla skemmtilega staðreynd: Alþingi samþykkti aldrei að draga aðildarumsókn Íslands til baka, af hverju erum við þá að kjósa?Gunnar Bragi Sveinsson sendi vissulega bréf til ESB en tillagan um að Alþingi drægi umsóknina formlega til baka var aldrei samþykkt — hún var ekki einu sinni lögð fram fyrir Alþingi. Þegar ég var í stjórn Evrópuráðs Pírata vann ég í heimkynnum ESB í Brussel. Eitt það vandræðalegasta við dvöl mína þar — fyrir utan að hafa öskurprumpað í þingsalnum — var hvað fólki fannst þáverandi ríkisstjórn Íslands hjákátleg og elskaði kjánakallana sem kynnu ekki á kerfið. Hugmyndin um Gunna Bé í viðtölum alveg: "Hei! Ég sendi þeim sko bréf!" Hugmyndin um litla þingmanninn sem gæti bara sent bréf og þar með væri málið dautt og grafið vakti, vægast sagt, athygli. Og hann gerði þetta ekki einu sinni sérstaklega afgerandi. Í stað þess að skrifa eitthvað á borð við: „Iceland hereby withdraws its application for membership.“ skrifaði hann: “The Government of Iceland has no intentions to resume accession talks … Iceland should not be regarded as a candidate country for EU membership.” Þetta hljómar minna eins og formleg uppsögn alþjóðlegs ferlis og meira eins og gelgja í mótþróa: „Sko, ég hef bara engan áhuga á að tala við þig, skiluru, þúst … gleymdu númerinu mínu.“ Klassískt Klausturslag. Viðbrögð ESB voru svo dásamlega evrópsk: “The presidency of the Council took note of the letter.” „Já, Gunnar minn. Við höfum móttekið bréfið.“ Og nú ætlum við sem sagt að eyða um 650 milljónum króna í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum. Ofan á það eru hundruð mínútna af keyptum auglýsingum í gangi þegar þetta er skrifað og furðulega stór hluti umræðunnar virðist ekki snúast um spurninguna sem við erum í raun að fara að kjósa um — hvort við eigum að halda áfram að semja — heldur um aðildarsamning sem er ekki til. Eigum við aðeins að ræða hvað það er villandi? En ókei. Gefum okkur að þjóðin kjósi JÁ næsta laugardag. Þá hljótum við að vera nánast komin inn í ESB, ekki satt? Nei. Sko! Þegar viðræðurnar voru settar á pásu höfðu 27 samningskaflar verið opnaðir og 11–12 lokað til bráðabirgða. Fyrst þarf því að fara yfir gömlu vinnuna og ákveða hvað stendur enn og hvað þarf að endurmeta. ESB-ríkin þurfa að samþykkja samningsrammann einróma. Spjalli, spjalli, spjall. Þegar við hættum að spjalla síðast voru stærstu íslensku álitamálin enn ókláruð — meðal annars sjávarútvegur og landbúnaður. Svo þarf að semja um sérlausnir, undanþágur og aðlögunartímabil. Þarna fyrst fáum við að vita hvaða aðildarkjör Ísland getur raunverulega fengið. Allir samningskaflar þurfa að klárast. Enginn þeirra er endanlega lokaður fyrr en heildarsamkomulag liggur fyrir. Samningurinn þarf samþykki Evrópuþingsins og einróma samþykki ráðs ESB. Ísland og aðildarríki ESB undirrita aðildarsamninginn. Nei, við erum samt ekki komin inn. Alþingi boðar þjóðaratkvæðagreiðslu. Og þá — loksins — fáum við samninginn í hendurnar og kjósum um það sem okkur stendur raunverulega til boða. Þá getum við sagt: Já, þetta er góður samningur. Förum inn. Eða: Nei takk. Þetta er glataður samningur. Förum heim. En segjum að þjóðin kjósi aftur JÁ. Erum við þá komin inn? Ó, nei. Sko aftur! Alþingi samþykkir nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar. Alþingi er rofið. Alþingiskosningar fara fram. Nýtt Alþingi þarf að samþykkja óbreyttar stjórnarskrárbreytingar. Ríkisstjórnin þarf síðan heimild Alþingis til að fullgilda aðildarsamninginn. Ísland fullgildir samninginn. Öll aðildarríki ESB þurfa síðan að fullgilda aðildarsamning Íslands samkvæmt sínum stjórnskipunarreglum. Og þá getur samningurinn tekið gildi. Ég trúi á upplýstar ákvarðanir. Ég skil þess vegna engan veginn hvers vegna við ættum að slá hendinni á móti upplýsingum um það hvaða samning Ísland getur raunverulega fengið — sérstaklega þegar já við aðildarviðræðum er ekki já við aðild. Það er einfaldlega já við því að komast að því hvað stendur okkur til boða. Svo getum við tekið ákvörðun. Það er munur á að vera heimskur og að vera kjáni. Vertu kjáni! Við erum indælisfólk. Höfundur er fjarnámshönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar