Skoðun

Hver ætlar að hafa augun á boltanum?

Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar

Síðastliðinn miðvikudag hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti um 0,25 prósentustig og standa þeir nú í 8,0%. Það verður seint talið fagnaðarefni. Evrópuhreyfingin birti þó fyrirfram unnið myndband þar sem framkvæmdastjóri hennar labbaði skælbrosandi um götur borgarinnar og færði áhorfendum tíðindin af vaxtahækkuninni. Evrópuhreyfingin virðist hafa beðið í eftirvæntingu eftir tilkynningu Seðlabankans svo að hún gæti loksins birt þetta fyrirfram unna myndband sitt sem einhvers konar úrkynjaða útgáfu af hvatningarmyndbandi til þjóðarinnar um að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag.

Pólitískt sjálfsmark

Ég er hins vegar ósammála því að þetta hafi átt að vera eitthvert sérstakt fagnaðarefni fyrir já-sinna. Þvert á móti held ég að Evrópuhreyfingin hefði átt að svekkja sig alveg jafn mikið á þessari vaxtahækkun og almenningur, ef ekki meira.

Því hvað gerir þetta annað en að staðfesta það sem nei-sinnar hafa haldið fram í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar: að tiltekt í efnahagsmálum verði sett á hakann á meðan aðildarferlinu stendur?

Hvernig eigum við sem þjóð að geta trúað því að ríkisstjórnin geti haldið augunum á boltanum í efnahagsmálum samhliða aðildarviðræðum ef henni tókst ekki einu sinni að gera það samhliða þessari kosningabaráttu, sem er umtalsvert umfangsminni en aðildarviðræður?

Á hvaða bolta viljum við að augu stjórnvalda séu?

Fólk þarf því að spyrja sig: „Er ég tilbúin(n) að búa við viðvarandi hátt vaxtastig, með líkum á enn frekari vaxtahækkunum, meðan á samningsferlinu stendur, til þess eins að fá glataðan samning í hendurnar sem ég mun hvort sem er hafna?“

Mér finnst það í það minnsta ekki hljóma mjög skynsamlega.

Við þurfum því fyrst að meta hver líkleg afstaða okkar verður í seinni kosningunum og, út frá því, ákveða hvort við séum tilbúin að sætta okkur við að augu stjórnvalda verði einhvers staðar allt annars staðar en á efnahagsboltanum næstu árin.

Höfundur er fjármálaverkfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×