Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Aron Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 10:30 Enes Kanter og Cloud átti snörp orðaskipti í þriðja leikhluta. Enes segir að sér hafi verið hent út úr húsi fyrir það að styðja konur Vísir/Getty Fyrrverandi NBA leikmaðurinn Enes Kanter Freedom var rekinn út úr húsi á leik Indiana Fever og Chicago Sky í WNBA deildinni í nótt. Hann lenti í orðaskaki við Natöshu Cloud, leikmann Chicago.
Atvikið átti sér stað í þriðja leikhluta leiksins og setti Cloud niður sniðskot sem kallaði fram leikhlé hjá þjálfara Indiana Fever. Við það tækifæri lét Cloud téðan Enes Kanter heyra það þar sem að hann sat við völlinn. Enes Kanter GOT INTO IT with a WNBA player and was KICKED OUT the arena 😳 pic.twitter.com/DCBhO8ZPhD— BrickCenter (@BrickCenter_) August 24, 2026 Kanter hefur farið mikinn undanfarnar vikur og mánuði í andstöðu sinni gegn því að transíþróttafólk fái að keppa með konum. Sjálfur hefur hann sagst út á við skilgreina sig sem konu og reynt að fá sig skráðan í nýliðaval WNBA deildarinnar. Allt sem á undan var gengið varð til þess að Cloud sá sig knúna til þess að láta Enes Kanter heyra það og þurftu öryggisverðir vallarins að stíga á milli þeirra. Kanter var síðan vikið út úr húsi og hélt leikurinn áfram. „Ég er að styðja konur og þess vegna er verið að henda mér út,“ lét Kanter síðan hafa eftir sér. Enes Kanter Freedom spilaði á sínum ferli 748 leiki í NBA deildinni yfir ellefu tímabil. Eftir að ferli hans lauk hefur Kanter helgað sér aktívisma, blandað sér í stjórnmálaumræðu, umræðu um mannréttindi og gagnrýnt NBA deildina fyrir samskipti og samstarf við Kína. Hann kallaði eftir því að Bandaríkin myndu sniðganga Vetrarólympíuleikana í Kína árið 2022 og það var á þeim tíma sem hann bætti orðinu Frelsi (e. Freedom) við nafn sitt.
WNBA NBA Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira