Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Agnar Már Másson skrifar 24. ágúst 2026 21:21 Ólafur Ragnar Grímsson (t.h.) sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er ekki sátt. Samsett Mynd Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist líta ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, „alvarlegum augum“ þegar hann sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Kveðst hún vonast til að forystufólk landsins, líka fyrri tíðar, nálgist umræðuna af auðmýkt.
Þorgerður Katrín lét þessi orð falla í viðtali í Kastljósi í kvöld. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti sem er jafnframt orðinn eitt af andlitum nei-hreyfingarinnar, hafði sagt í viðtali í Spursmálum á mbl.is á föstudag að ekki væri hægt að líta á utanríkisráðuneytið sem „sjálfstæðan matsaðila“ í málefnum atkvæðagreiðslunnar, heldur væri það orðið að „áróðursdeild“. „Það er bara því miður þannig,“ sagði Ólafur í Spursmálum. Vísaði hann meðal annars til skrifa Gunnars Braga Sveinssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem hafði sagt utanríkisráðuneytið hafa synjað sér um aðgang að um hundrað skjölum úr ráðherratíð Gunnars. Leitt að Ólafur skuli draga starfsfólk ráðuneytisins Innt var eftir viðbrögðum Þorgerðar við þessu í Kastljósi í kvöld. „Mér finnst leitt að af því að Ólafur Ragnar er ekki sammála mér í pólitík, að hann skuli draga þá allt það hæfa starfsfólk utanríkisráðuneytisins sem sinnir sínu starfi af mikilli natni, þekkingu og reynslu,“ brást hún við. „Og þetta er að einhverju leyti einsdæmi að fyrrum forystumaður Íslands skuli vera að tala niður íslenska stjórnsýslu. Ég lít þetta mjög alvarlegum augum,“ hélt hún áfram og bætti við: „Það er allt annað að vera ósammála mér í pólitík, en mér finnst vont þegar framamaður – eins og kom fram í Sprengisandi í gær hjá Guðna Th. [Jóhannessyni, fyrrverandi forseta] þegar hann bendir réttilega á að þeir sem hafa verið forystumenn í íslensku samfélagi og hafa frekar greiðan aðgang að míkrófóni – þeir bera líka ábyrgð. Ég kalla eftir því að allt forystufólk, líka fyrri tíma, nálgist þetta verkefni af auðmýkt og virðingu ekki síst fyrir íslensku þjóðinni.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ólafur Ragnar Grímsson Stjórnsýsla Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira