Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar 26. ágúst 2026 14:20 „Ég fór á einn fund um daginn þar sem manneskja, sem er með mikla hagsmuni í útgerð, byrjaði á að ávarpa herbergið með: Ég ætla að kjósa já vegna þess að ef við göngum inn í Evrópusambandið þá get ég selt allan kvótann minn til Hollendings og cashað út.“ Orð formanns Samfylkingarinnar Hver skyldi hafa mælt á þennan veg eftir að hafa heyrt þetta á fundi sem hún sótti? Það var Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, sem sagði frá í þættinum Chess after dark. Ég vísa í þessi ummæli því nákvæmlega þessu var ég að gera skóna í grein sem ég skrifaði á visi.is fyrir nokkru, nefnilega að eigendur stórútgerðarinnar vildu komast með ránsfeng sinn inn í kauphallir Evrópu. Uppskar ég talsverð viðbrögð, einkum vegna þess að menn töldu mig fara með rangt mál þegar ég sagði að eigendur stórútgerðarinnar vildu fyrir alla muni komast í ESB til að geta «cashað út». Hægt að komast að tímabundnu samkomulagi – en ekki til frambúðar Nú má vel vera að Kristrún Frostadóttir telji að ná megi tímabundið samkomulagi um eignarhald í íslenskri útgerð, að það skuli vera í meirihlutaeign Íslendinga, - sem yrði þá gagnkvæm regla og fyrir bragðið ekki „cashað út“- eða að staðið verði á umframréttindum Íslendinga á Íslandsmiðum. Vandinn er hins vegar sá að á slíkt er ekki treystandi til frambúðar; reynslan sýnir að slíkir samningar halda ekki.Reynsla Íra Þetta kom fram í máli tveggja írskra kunnáttumanna á fundi hjá samtökunum Til vinstri við ESB á dögunum. Allt sem Írar töldu vera samningsbundið hélt ekki þegar á reyndi. Niðurstaða þessara Íra, sem báðir voru fyrrum þingmenn, annar á þingi Evrópusambandsins, hinn á írska þinginu, var að ekkert stæðist nema það sem bundið væri formlega í stofnsáttmála ESB. En til þess að breyta honum þyrfti samþykki allra aðildarríkjanna og þá einnig þeirra fiskveiðiríkja sem lögðust gegn því að samningarnir við Íra yrðu virtir þegar á reyndi. Á það hefur margoft reynt, nú síðast undir lok síðasta árs. Þá kom endanlega í ljós að þessir samningar sem gengu undir heitinu Haag-viðmiðin voru fokin út í buskann þrátt fyrir undirskriftir og fögur orð. Svo er það hitt, sem ég vil aldrei láta ósagt, að frá mínum bæjardyrum séð er það svo að jafnvel þótt það sé höfðumál og grundvallaratriði að vernda íslenskan sjávarútveg myndi ég ekki vilja fyrir nokkurn mun inn fyrir dyr hjá Evrópusambandinu af ástæðum sem ég hef margoft gert grein fyrir í öðru samhengi. Evrópu vil ég eiga mikil og náin samskipti við – Evrópusambandið er allt önnur Ella. Dásamaði markaðshyggjuna Nú veit ég ekki hvort Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra sjái yfirleitt eitthvað athugavert við það að menn „cashi-in“ eða „cashi-út“ peningaeignum sínum. Í sama sjónvarpsþætti og hún sagði frá kvótahafanum sem vildi „casha út“ kvótanum sínum, sá hún það sem sérlega eftirsóknarvert að við inngöngu í ESB yrði búið í haginn fyrir enn meira samkeppnisumhverfi á Íslandi. Þetta rímar vel við skjallið í garð Alistairs Campbell, eins helsta höfundar New Labour markaðshyggjunnar og Blairismans í Bretlandi. Kvað hún Campell áhrifavald í sinni pólitísku stefnumótun. Þessi hugsun er einmitt sú kredda sem ég óttast við inngöngu í ESB, þetta miðstýrða bákn sem fyrst og fremst þjónar markaðshyggjunni og nú hernaðarhyggjunni í ofanálag. Ég hef furðað mig á því hve fáir virðast hafa af því áhyggjur að jafnframt aukinni samræmingu í utanríkis- og «varnar»málum er Brusselvaldið farið að beita refsiaðgerðum og ritskoðun gegn þeim sem leyfa sér að setja sig upp á móti slíkri samræmdri stefnu sambandsins. Virðingarverðar undantekningar En aftur að íslenska útgerðarauðvaldinu sem menn segja sumir að styðji baráttuna gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þá er það fyrst undantekningin sem sannar regluna. Sú undantekning eru menn af sauðahúsi Einars Sigurðssonar stjórnarformanns Ísfélagsins í Vestmannaeyjum sem sagði eftirfarandi á aðalfundi félagsins um miðjan apríl: „Fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum, sérstaklega þessum skráðu félögum á Íslandi, kunna að leynast stór tækifæri (í inngöngu í Evrópusambandið), en fyrir fólkið okkar sem starfar í þessum félögum og þeim samfélögum sem við störfum í, þar á líklega annað við. Stærstu fyrirtæki landsins í sjávarútvegi hafa bæði slagkraft og kunnáttu til að fjárfesta erlendis og hafa sum þegar gert það. Ísfélagið treystir sér vel í þá samkeppni gagnvart erlendum fyrirtækjum.” Svo eru það allir hinir Guðmundar Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti hins vegar í pallborðinu á landsþingi Viðreisnar síðastliðið haust og tók þar þátt í lofkórnum um Evrópusambandið. Þá hefur komið fram að framkvæmdastjóri hjá þessari stórútgerð, Hjálmar Vilhjálmsson, er einn af forystumönnum samtakanna Sjá sem vilja að samþykkt verði í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja inngöngu í ESB. Frá því að ég benti á þetta í grein sem birtist á vísi.is ekki alls fyrir löngu, hefur bæst í hópinn, Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims. Í myndskeiði á vegum samtakanna talar hann afdráttarlaust fyrir inngöngu Íslands í sambandið. Greining Arctica Finance Hér er auðvitað ekki um að ræða tilviljanir enda hefur verið bent á það að hagsmunum stórútgerðarinnar, sem þegar hefur komið sér vel fyrir innan ESB, yrði betur borgið innan sambandsins en utan þess. Til dæmis var vakin athygli á þessu í greiningu ráðgjafarfyrirtækisins Arctica Finance fyrr á árinu þar sem meðal annars kom fram að gengi Ísland í ESB myndi virði fyrirtækjanna stóraukast þegar ekki væri lengur heimilt vegna reglna sambandsins að setja skorður við erlendu eignarhaldi á þeim. Íslenskt samfélag er það sem máli skiptir En eftir stendur að hagsmunir íslenskra sjávarbyggða yrðu fyrir borð bornir og þar með íslensks samfélags í heild sinni. Ég hef séð því haldið fram á samfélagsmiðlum af hálfu einhverra þeirra sem réttilega hafa gagnrýnt framsalskerfi kvótans hér á landi að slagurinn um kvótann sé tapaður – honum hafi öllum verið stolið. Það er rétt honum hefur verið stolið og það með hjálp íslenskra stjórnmálamanna. En það er ekki rétt að slagurinn sé tapaður. Þessu má nefnilega breyta. Sjávarauðlindin á Íslandsmiðum er ekki uppurin og verður vonandi ekki í bráð. Og enn má ná „kvótanum heim“ eins og við mörg hver höfðum náð að sameinast um að krefjast. Hvernig væri að virkja lýðræðið á fleiri sviðum? Á Alþingi hefur hins vegar ekki staðið vilji til þessa og úti í þjóðfélaginu hefur ríkt of mikil þögn. Þar hafa þagað margir þeirra sem nú tala hátt og gerst ákafir talsmenn þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvernig væri að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þessa kröfu: Kvótann heim? Hvernig skyldu þau taka í þá kröfu, Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar og varaformaðurinn, Daði Már og einnig þau hjá Samfylkingunni, Kristrún Frostadóttir, Logi, Dagur og öll hin sem dásamað hafa fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu hvað mest og langar svo mikið að segja já til að sjá. Ég er ekki viss um að þeir félagar hjá Brimi yrðu jafn áhugasamir og þeir eru nú að komast með feng sinn frá Íslandi. Höfundur er fyrrum ráðherra og þingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ögmundur Jónasson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
„
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun