Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar 27. ágúst 2026 08:31 Átta dæmi sem sýna hvernig stofnanir ESB og evrópski seðlabankinn stilla aðildarríkjum upp við vegg til þess að krefjast stórfellds niðurskurðar velferðarmála í skiptum fyrir aðstoð og neyðarlán. Oftar en ekki þegar áföll dynja yfir. Dæmin sýna að ESB er ekki hlutlaust bandalag sem vinnur að því að verja hagsmuni og stöðu almennings eins og mætti stundum skilja á umræðunni. Aðild að ESB myndi ekki aðeins færa landinu tækifæri heldur ekki síður áskoranir. Þar ráða bankar, stórfyrirtæki og fjármálaöfl miklu rétt eins og í íslensku samfélagi. Lettland 2009: Laun lækkuð til að verja gengið Lettland var ekki komið með evru þegar fjármálakreppan skall á 2008, en á þeim tíma var gengi latsins bundið við hana. Stjórnvöld vildu halda genginu stöðugu og þurftu á lánum að halda til að forða bankakerfinu og ríkissjóði frá falli. Evrópusambandið lofaði Lettlandi allt að 3,1 milljarði evra, en hélt eftir greiðslu upp á 1,2 milljarða þar til þingið hafði samþykkt ný fjárlög sem fólu í sér lægri laun opinberra starfsmanna, fækkun starfa, skattahækkanir og skerðingu lífeyris og bóta. Þetta er það sem er kallað innri gengisfelling. Gengi gjaldmiðilsins var haldið uppi, en lífskjör tóku á sig höggið á annan hátt. Reikningurinn birtist í lægri launum, niðurskurði og atvinnuleysi. Landsframleiðslan dróst saman um nærri fjórðung og stórir hópar fólks fluttu úr landi. Lettar kusu vissulega þingið sem samþykkti niðurskurðinn. En þegar milljarðagreiðslum er haldið eftir með þessum hætti er spurningin ekki hvort skera eigi niður heldur hvar. Írland 2010: Lífæð bankanna bundin við niðurskurðaráætlun Írsk stjórnvöld höfðu sjálf gert mistök þegar þau ábyrgðust skuldir bankanna haustið 2008. Tveimur árum síðar voru bankarnir orðnir háðir lánum frá evrukerfinu en ríkisstjórnin vildi komast hjá því að sækja um formlega aðstoð frá ESB og AGS. Þá sendi Jean-Claude Trichet, forseti Seðlabanka Evrópu, írska fjármálaráðherranum bréf sem síðar var birt. Skilaboðin voru að stuðningur við írska banka yrði bundinn samþykkt ríkisstjórnarinnar á kröfunum og tryggingu fyrir fullri endurgreiðslu neyðarlánanna. Írska þingið tók því ekki afstöðu við venjulegar aðstæður heldur undir miklum þrýstingi. Niðurstaðan var 67,5 milljarða evra lán, auk eigin framlags Íra, endurfjármögnun bankanna og langvarandi niðurskurður fyrir alla aðra. Tap bankakerfisins var að miklu leiti fært yfir á ríkissjóð þótt eigendur víkjandi skuldabréfa hafi einnig tapað. Spánn 2011: Skuldabréfakaup í skiptum fyrir niðurskurð Sumarið 2011 hækkuðu vextir af spænskum ríkisskuldum hratt. Ríkisstjórn José Luis Rodríguez Zapatero vildi að Seðlabanki Evrópu keypti spænsk skuldabréf til að róa markaðinn. Hinn 5. ágúst kom Jean-Claude Trichet aftur við sögu þegar hann ásamt seðlabankastjóra Spánar sendi Zapatero trúnaðarbréf. Krafist var breytinga á kjarasamningum, að dregið yrði úr vísitölutengingu launa, að starfslokagreiðslur yrðu lækkaðar, og bindandi útgjaldareglur yrðu hertar. Zapatero svaraði daginn eftir, lofaði aðgerðum og óskaði eftir stórfelldum skuldabréfakaupum. Skömmu síðar breytti spænska þingið stjórnarskránni í flýti. Grikkland 2011: Hætt við þjóðaratkvæðagreiðslu George Papandreou forsætisráðherra Grikklands tilkynnti haustið 2011 að Grikkir fengju að greiða atkvæði um nýjan skuldasamning við ESB og AGS en samningnum fylgdi mikill niðurskurður. Viðbrögðin frá Evrópu létu ekki á sér standa. Angela Merkel og Nicolas Sarkozy kölluðu Papandreou á fund í Cannes og sögðu honum að kosningin yrði þá að snúast um hvort Grikkland yrði áfram í evrunni eða ekki. Jafnframt yrði næstu greiðslu úr neyðarláninu, átta milljarðar evra sem ríkið þurfti nauðsynlega á að halda, sett í bið þar til óvissunni lyki. Papandreou hætti við þjóðaratkvæðagreiðsluna og sagði skömmu síðar af sér. Við tók samsteypustjórn undir forystu Lucas Papademos, fyrrverandi varaforseta Seðlabanka Evrópu. Stjórnin fékk þingið til að samþykkja skilyrðin, og tryggði framgang neyðarlána í skiptum fyrir lækkun lágmarkslauna, eftirlauna, og frekari niðurskurð ríkisútgjalda. Ítalía 2011: Stuðningur í skiptum fyrir einkavæðingu Á Ítalíu sjáum við svipað mynstur. Trichet og Mario Draghi, þáverandi seðlabankastjóri Ítalíu, sendu ríkisstjórn Silvios Berlusconi bréf þar sem krafist var niðurskurðar, einkavæðingar, breytinga á kjarasamningum, rýmri heimilda til uppsagna og stjórnarskrárbundinnar fjárlagareglu. Á sama tíma var Seðlabanki Evrópu að kaupa ítölsk ríkisskuldabréf og hafði þannig bein áhrif á lántökukostnað ítalska ríkisins. Berlusconi samþykkti hluta krafnanna en missti þingmeirihlutann þegar vextirnir héldu áfram að hækka. Hann sagði skjótt af sér. Giorgio Napolitano forseti fól þá Mario Monti, sem hafði ekki boðið sig fram í kosningum, að mynda stjórn skipaða sérfræðingum. Stjórnin hóf skjótt að skera niður og breyta lífeyriskerfinu. Portúgal 2011–2014: Áframhaldandi niðurskurður þrátt fyrir dóm Þegar Portúgal missti aðgang að lánamörkuðum árið 2011 var samið um allt að 78 milljarða evra neyðarlán frá evrópskum lánasjóðum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Framkvæmdastjórn ESB, Seðlabanki Evrópu og AGS, þríeykið svokallaða, sömdu um áætlunina við portúgölsk stjórnvöld og fylgdust með framkvæmd hennar. Útgreiðslur voru háðar reglulegum úttektum. Skilyrðin vörðuðu ekki aðeins hallann á ríkissjóði. Þau náðu til einkavæðingar orkufyrirtækja, samgangna, pósts og flugvalla, og styttri greiðslutíma atvinnuleysisbóta auk fjölda annarra aðgerða. Árið 2013 ógilti stjórnlagadómstóll Portúgals hluta niðurskurðaraðgerðanna, þar á meðal skerðingu orlofsuppbótar og eftirlauna. Lánardrottnarnir kröfðust þess þá að ríkisstjórnin fyndi aðrar leiðir áður en næsta greiðsla neyðarlánsins yrði tryggð. Portúgalska stjórnin svaraði með því að hækka eftirlaunaaldurinn og auka vinnutíma opinberra starfsmanna. Kýpur 2013: Neyðarfjármögnun gegn bankauppgjöri og niðurskurði Bankakerfi Kýpur stóð á barmi hruns vorið 2013. Fyrsti samningurinn við Evruhópinn (Eurogroup), samstarfsvettvang fjármálaráðherra evruríkjanna, gerði ráð fyrir 6,75% skatti á innistæður undir 100 þúsund evrum en kýpverska þingið hafnaði honum. Þátilkynnti bankaráð Seðlabanka Evrópu að neyðarfjármögnun kýpverskra banka yrði stöðvuð nema stjórnvöld semdu við ESB og AGS um endurskipulagningu bankakerfisins. Samningurinn fól að lokum í sér að Laiki-bankinn var lagður niður og Bank of Cyprus endurfjármagnaður. Lánapakkinn sem fylgdi krafðist jafnframt niðurskurðar á launum, lífeyri, skattahækkana og einkavæðingar ríkiseigna. Grikkland 2015: Niðurskurður þrátt fyrir höfnun í þjóðaratkvæðagreiðslu Skýrasta dæmið kom fjórum árum síðar. Syriza flokkurinn vann grísku þingkosningarnar í janúar það ár með loforði um að binda enda á niðurskurðarstefnuna sem hafði legið eins og mara á grísku þjóðinni. Rúmri viku síðar afnam Seðlabanki Evrópu undanþágu sem gerði grískum bönkum kleift að leggja grísk ríkisskuldabréf að veði fyrir ódýrari lánum. Bankarnir urðu þess í stað háðari dýrari neyðarlánum frá gríska seðlabankanum, lánum sem bankaráð Seðlabanka Evrópu gat takmarkað. Þegar Alexis Tsipras forsætisráðherra boðaði þjóðaratkvæði um kröfur lánardrottnanna í lok júní þess árs jókst útstreymið úr bönkunum enn frekar. Bankaráð Seðlabanka Evrópu ákvað að halda hámarki neyðarlánanna óbreyttu og auka ekki við neyðarheimildirnar þótt úttektir héldu áfram. Grísk stjórnvöld lokuðu þá bönkunum og settu fjármagnshöft. Kjósendur gengu því til atkvæðagreiðslunnar með lokaða banka og yfirvofandi greiðsluþrot bankakerfisins. Þrátt fyrir þetta sögðu 61,3 prósent nei. Daginn eftir hélt Seðlabanki Evrópu lánahámarkinu áfram óbreyttu og beitti frekari aðgerðum. Rúmri viku síðar féllst Tsipras á skilyrðin og viðræður um þriðja neyðarlánapakkann hófust, þrátt fyrir niðurstöðuna. Gríska þingið þurfti meðal annars að lögfesta breytingar á sköttum, lífeyri og ríkisfjármálum áður en formlegar viðræður hæfust. Það var ekki fyrr en eftir að þingið hafði samþykkt fyrstu aðgerðirnar sem Seðlabanki Evrópu hækkaði aftur neyðarlánaheimildir bankanna. Lýðræði með skilyrðum Evrópsku ríkisstjórnirnar úr dæmunum hér að ofan báru ábyrgð á skuldum, slæmri bankastjórn og jafnvel pólitískum mistökum. En hvers vegna voru kröfurnar aftur og aftur einkavæðing, veiking kjarasamninga og réttinda verkafólks, niðurskurður lífeyris, og niðurskurður á opinberri þjónustu? Og hvers vegna féll svo stór hluti reikningsins á almenning? Evrópusambandið er ekki hlutlaus vettvangur þar sem ríkisstjórnir ræða saman og finna málamiðlanir heldur bandalag þar sem ríkja mikil innri átök og valdabarátta þar sem hagsmunir og réttindi almennings víkja oftar en ekki fyrir kröfum banka og fjármálastofnana. Á evrusvæðinu hafa ríkin afsalað sér sjálfstæðri peningastjórn og valdi yfir útgáfu eigin gjaldmiðils. Þau skulda í mynt sem þau ráða ekki sjálf yfir og seðlabankar þeirra eru hluti af sameiginlegu evrukerfi sem kjósendur hafa lítil sem engin áhrif á. Reglurnar verja lánveitendur, frjálst flæði fjármagns og stöðugleika bankakerfisins af meiri festu en þær verja rétt kjósenda til að breyta um efnahagsstefnu. Evrópskum ríkisstjórnum er frjálst að taka eigin ákvarðanir svo lengi sem þær ganga ekki gegn hagsmunum evrópskra fjármálaafla. Höfundur er sósíalisti og hönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar