Handbolti

Reynir Þór með fína frammi­stöðu í tapi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Reynir Þór Stefánsson var flottur hjá Melsungen.
Reynir Þór Stefánsson var flottur hjá Melsungen.

Kiel hafði betur gegn Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Leikurinn fór 35-27 og það í Kiel.

Lukas Zerbe var markahæstur í liði Kiel með sjö mörk og Domen Makuc gerði sex.

Þá hafði Fusche Berlin betur gegn Melsungen 33-31 en leikurinn fór fram í Berlínarborg.

Reynir Þór Stefánsson átti fínan leik hjá Melsungen og skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar.

Matthes Langhoff var markahæstur hjá Fusche með 9 mörk. Mathias Gidsel kom þar á eftir með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×