Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar 28. ágúst 2026 08:42 Inngangur Öll þurfum við að taka ákvarðanir, stórar eða smáar, um daglegar athafnir okkar og annarra. Hverri ákvarðanatöku fylgir ábyrgð hvort sem um er að ræða að velja akrein á hraðbraut, setja barni reglur um skjátíma eða kaup á bíl eða íbúð. Stundum eru ákvarðanir teknar í samráði við fleiri þar sem um er að ræða hagsmunamál fjölskyldu eða hagsmunahóps og það nær hámarki með þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem allir hafa sama rétt og skyldur. Saga þjóðaratkvæðagreiðslna Á fyrri tímum tíðkuðust ekki þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi nema við ákvarðanir sem vörðuðu sjálfstæði þjóðarinnar og rakið er hér á eftir: ·Atkvæðagreiðsla um sambandslögin 1918 sem samþykkt voru með miklum meirihluta (92 %) og atkvæðagreiðsla um lýðveldisstofnun 1944 sem samþykkt var einnig með miklum meirihluta (99 %). Á síðari tímum hafa verið haldnar þrjár þjóðaratkvæðagreiðslur um málefni sem vörðuðu mikilvæg atriði í stjórnskipun landsins og ábyrgð ríkissjóðs á skuldum íslenskra banka og sú fjórða er á döfinni eins og rakið er hér á eftir: ·Tvær atkvæðagreiðslur um lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skulda árið 2010 og 2011. Forseti hafnaði lögunum sem síðan voru lögð fyrir þjóðina og felld með yfirgnæfandi meirihluta (98 %) og endurbætt lög um sama efni felld með nokkrum meirihluta (60 %). ·Atkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá 2012 að tillögu stjórnarlagaráðs sem var samþykkt með meirihluta (73 %) atkvæða. Eftir að kærur bárust um framkvæmd kosningar var kosningin dæmd ógild. ·Núverandi atkvæðagreiðsla um hvort taka eigi upp að nýju samningaviðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Saga ESB-umsókna ·Árið 2009 var mynduð ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna eftir mikinn kosningasigur þessara flokka eftir afsögn hrunstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar. Í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar kom fram að farið yrði í aðildarviðræður við Evrópusambandið og samningur síðan borinn undir þjóðaratkvæði. Þar sem Samfylkingin var hlynnt aðild en Vinstri græn andvíg var gert sérstakt samkomulag milli flokkanna um að vinna að þessari umsókn. Gekk á ýmsu í þessu samstarfi og tókst ekki að ljúka samningaferlinu á kjörtímabilinu sem síðan var slitið af næstu ríkisstjórn. ·Núverandi ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks Fólksins hefur gert með sér samkomulag um að taka upp viðræður við Evrópusambandið en það er skilyrt með því að fyrst verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna. Hver er ábyrgð einstaklingsins ? Vegna fyrirhugðaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu kemur fyrst upp spurningin: Hvers vegna þarf ég sem einstaklingur að taka afstöðu til máls sem heyrir undir stjórnvöld sem til þess eru kosin ? í alþingiskosningum á fjögurra ára fresti kjósum við stjórnvöld sem hafa það hlutverk að marka stefnu sem varða alþjóðleg samskipti. Í Forn-Grikklandi ríkti íbúalýðræði sem fólst í því að að kalla saman íbúa á torgum til að greiða atkvæði um mikilvæg málefni líðandi stundar og hefur oft verið kallað hið fullkomna lýðræði. Reyndar er líklegt að þau málefni sem rædd voru á slíkum samkomum hafi staðið íbúum nær heldur en umsókn um aðild að samsteypu tæplega fimm hundruð milljóna íbúa fyrir þjóð sem telur einungis tæpa hálfa milljón íbúa. Sagt hefur verið að þessi atkvæðagreiðsla hafi ekkert vægi þar sem hún opni aðeins á umsókn stjórnvalda um aðild og síðar verði greitt atkvæði um niðurstöður endanlegs aðildarsamnings. Með því er þó verið að færa ábyrgðina yfir á hinn almenna borgara því með samþykki sínu er hann að styðja stjórnvöld í að framkvæma ætlunarverk sitt. Því er ekki verið að kjósa um að „kíkja í pakkann“, eins og látið er í veðri vaka, heldur um hvort ferlið endi með aðild að Evrópusambandinu. Niðurlag Hér á landi hefur fólk skipst í tvær fylkingar með eða móti því að taka upp samningaviðræður að nýju. Þessar fylkingar hafa í skoðanakönnunum mælst mjög svipaðar svo kosningar þ. 29. ágúst geta farið á báða vegu. Það eru því líkur á að ríkisstjórnin fari með tæpt umboð í viðræður verði niðurstaðan jákvæð og ef niðurstaðan verður neikvæð verði það áfall fyrir hana. Spyrja má einnig hvernig staðan verður að loknum samningaviðræðum sem áætlaðar eru að standi í 1-2 ár þar til samningur verður lagður fram fyrir þjóðina til staðfestingar. Líklegt er að þeir sem kjósa með framhaldi nú verði einnig jákvæðir í seinni atkvæðagreiðslunni og eins að þeir sem eru á móti nú verði það einnig þá. Ljóst er að verði niðurstaðan jákvæð bíður stjórnvalda og þjóðarinnar að finna sameiginlegan grunn til þess að innlimast í þetta stærsta efnahagssamband í heimi sem telur nú 27 þjóðir. Vonandi verður þjóðaratkvæðagreiðslan þó til þess að varpa ljósi á vilja Íslendinga til að tengjast Evrópu nánari böndum eða að viðhalda núverandi stöðu sinni sem lítið ríki með sterka rödd á alþjóðavettvangi. Höfundur er efnaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar