Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 28. ágúst 2026 12:23 Á morgun greiðum við atkvæði um það hvort hefja skuli á ný aðildarviðræður við ESB. Við greiðum ekki atkvæði um aðild eða inngöngu í ESB í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Mikilvægt er að hafa þetta hugfast vegna þess að margir hafa reynt að telja kjósendum trú um eitthvað allt annað með ólýðræðislegri upplýsingaóreiðu undanfarna daga, vikur og mánuði. Sjáum samninginn og tökum upplýsta ákvörðun Með jái á morgun fáum við, að loknum aðildarviðræðum, samning á borðið og þá getur hver og einn metið hann fyrir sig út frá staðreyndum en ekki getgátum. Eftirlátum ekki fyrrverandi forseta, talsmönnum sérhagsmunaafla eða stjórnmálaflokka segja okkur hvað aðildarsamningur muni innihalda eða hvað hann muni ekki innihalda. Fáum samning á borðið svo við getum sjálf tekið upplýsta ákvörðun um hann í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, ákvörðun sem byggir á staðreyndum en ekki getgátum og upplýsingaóreiðu. Höldum öllum möguleikum og tækifærum opnum – segjum já og sjáum samninginn! Aukin alþjóðasamvinna hefur alltaf styrkt Ísland Allar stærstu ákvarðanir okkar í utanríkismálum á 20. öldinni þar sem við höfum aukið og dýpkað alþjóðasamvinnu hafa ávallt verið okkur til góðs. Aðildin að NATO og EFTA og EES samningurinn eru dæmi um þetta. Á grundvelli fullveldis okkar og sjálfstæðis ákváðum við að deila fullveldinu með vinaþjóðum þar sem hagsmunir okkar fara saman. Ekki var skortur á úrtöluröddum gegn þessum ákvörðunum en í dag er óumdeilt að EFTA, NATO og EES eru grunnstoðirnar í utanríksstefnu Íslands og tryggja öryggi okkar og efnahagslega velsæld. Allir sammála í dag um mikilvægi EES samningsins – líka hörðustu andstæðingar hans fyrir 30 árum Ísland hefur verið aðili að evrópska efnahagssvæðinu í rúm 30 ár í gegnum EES samninginn. Í því felst í raun aukaaðild að ESB þar sem við tökum upp stóran hluta löggjafar sambandsins. Hún er þó því marki brennd að við höfum lítil sem engin áhrif á mótun hennar. Fullveldi okkar styrkist því með því að fá sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar um mál og málefni sem varða okkur. Eitt það besta sem komið hefur út úr umræðunni undanfarna daga er að nú tala allir vel um EES samninginn og telja hann gríðarlega mikilvægan fyrir Ísland. Það á jafnvel við um menn sem hömuðust gegn EES fyrir þrjátíu árum en mæra nú samninginn. Engu að síður eru þeir mættir aftur á vettvang með sömu rökin og þeir notuðu fyrir þrjátíu árum gegn EES samningnum til þess að berjast berjast gegn aðildarviðræðum – og til þess að koma í veg fyrir að almenningur geti séð hvað býðst í aðildarsamningi. Væri fyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt því í þessu kristallast barátta fyrir sérhagsmunum á kostnað almannahagsmuna. Sótt að lýðræðisgildum og alþjóðalögum Breytt heimsmynd og uppgangur öfgaafla sem berjast gegn þeim lýðræðis- og mannréttindagildum sem við, eins og vinaþjóðir okkar í ESB, höldum í heiðri kalla á að við endurskoðum stöðu okkar í heiminum. Herskáir þjóðarleiðtogar í austri og vestri sækja líka að okkur og gildum okkar. Innrás Pútín í Úkraínu og ásælni og yfirgangur Trump gagnvart nágrönnum okkar og vinum á Grænlandi og Kanada sýna svo ekki verður um villst að smáþjóð, sem á allt sitt undir virðingu fyrir alþjóðalögum, verður að skoða það af fullri alvöru hvort henni sé ekki betur borgið sem fullgildur meðlimur í ríkjasambandi sem byggir einmitt á virðingunni fyrir samningum og alþjóðalögum. Í þeim efnum er ESB einfaldlega eina hugsanlega skjólið auk þess að vera nærtækasta lausnin vegna aukaaðildarinnar í gegnum EES samninginn. Sagan sýnir að við höfum ekkert að óttast - göngum stolt til aðildarviðræðna Með því að segja já á morgun höldum við opnum möguleikum og tækifærum fyrir Ísland til framtíðar en höfum samt möguleika á því að fella aðildarsamning í síðari þjóðaratkvæðagreiðslunni ef samningurinn reynist ekki ásættanlegur. Við höfum því allt að vinna með því að segja já á morgun en engu að tapa. Sagan kennir okkur einnig að stórar ákvarðanir um aukna alþjóðasamvinnu hafa alltaf reynst gæfuspor fyrir þjóðina þótt þær hafi verið erfiðar og umdeildar í umræðunni í aðdraganda þeirra. Það er engin ástæða til að ætla annað en að það sama gildi um aðildarviðræður við ESB. Í ljósi sögunnar er því engin ástæða til annars en ganga stolt og vongóð til viðræðna við ESB. Þjóðaratkvæðagreiðslan á morgun snýst um framtíðina og nú er það þjóðin sem ræður. Lokum ekki augunum fyrir tækifærum og möguleikum – segjum já á morgun og sjáum samninginn! Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Árni Rúnar Þorvaldsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar