Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Smári Jökull Jónsson skrifar 1. september 2026 06:34 Duane „Keffe D“ Davis hefur verið fundinn sekur um að hafa skipulagt morðið á Tupac Shakur árið 1996. Vísir/AP/Getty Fyrrum glæpaforinginn Duane „Keffe D“ Davis var í nótt fundinn sekur um að hafa skipulagt morðið á rapparanum Tupac Shakur sem var myrtur árið 1996. Málið hefur verið eitt mest umtalaðasta morðmál Bandaríkjanna síðustu þrjátíu árin.
Rapparinn Tupac Shakur var skotinn þann 7. september árið 1996 eftir að hafa fylgst með hnefaleikabardaga Mike Tyson og Bruce Seldon á MGM-Grand hótelinu í Las Vegas. Hann var þá farþegi í bíl þegar annar bíll keyrði upp að ökutækinu á umferðarljósum og skaut stjórnlaust inn í bílinn sem Shakur var í. Var hann skotinn fjórum sinnum og lést á sjúkrahúsi í Nevada nokkrum dögum síðar. Tupac var á hápunkti ferils síns og einn áhrifamesti rappari þess tíma. Hann hafði selt meira en 75 milljónir platna en morðið átti sér stað þegar deilur rappara á austur- og vesturströnd Bandaríkjanna stóðu sem hæst. Gengin Bloods and Crisps, með rætur í hip-hop senunni, áttu þá í hatrömmum deilum en Tupac var tengdur Bloods-genginu í gegnum plötufyrirtækið Death Row Records. Lentu í átökum fyrr um kvöldið Það tók kviðdóm í Las Vegas ekki nema nokkrar klukkustundir að finna Duane „Keffe D“ Davis sekan um morðið á Tupac en dómur yfir honum verður kveðinn upp þann 13. október. Á hann yfir höfði sér lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn en hann ætlar að áfrýja dómnum. Í réttarhöldunum héldu saksóknarar því fram að Davis, sem var einn af foringjum Crisps gengisins, hafi ekki verið sá sem skaut Tupac Shakur heldur skipulagt morðið og útvegað byssuna sem notuð var í árásinni. Ástæðan fyrir morðinu á að vera sú að Tupac og fylgdarlið hans hafði lent í átökum við frænda Keffe D, Orlando Anderson, á MGM-Grand hótelinu fyrr um kvöldið. Er talið að Anderson sé sá sem skaut Tupac en sjálfur var Anderson skotinn til bana árið 1998, þá 23 ára gamall.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira