Erlent

Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gríðarleg sorg ríkir í Nepal.
Gríðarleg sorg ríkir í Nepal. Vísir/EPA

Manntjón í Nepal vegna gríðarlegra flóða við landamærin að Tíbet er komið í 987 samkvæmt almannavarnayfirvöldum landsins.

Hamfarirnar áttu sér stað þann 26. ágúst en þá varð skyndiflóð og skriður í kjölfarið. Um 3.916 manns er enn saknað, þar af meira en 600 starfsmanna sem talið er að séu fastir í umfangsmiklu neti gangna við vatnsaflsvirkjanir meðfram Trishuli-ánni.

Í umfjöllun BBC segir að verkfræðingar hafi síðustu daga dælt lofti inn í göngin. Björgunarsveit hafi tekist að komast inn í ein göngin en þurft að snúa við eftir að enginn fannst þar.

Nepal reiðir sig mjög á vatnsafl og hefur um árabil unnið að uppbyggingu virkjana við ár landsins, sem renna um fjalllendi. Yfirvöld segja að að minnsta kosti 11 virkjanaverkefni, ýmist fullbyggð eða í byggingu, hafi skemmst í flóðunum.

Enn er verið að leita fólks sem lendi undir flóðum og skriðum.Vísir/EPA

Alþjóðlegt teymi leiðir björgunaraðgerðirnar en í því eru kínverskir og nepalskir hermenn. Sérfræðingar frá Indlandi, Kóreu og Ástralíu taka einnig þátt í aðgerðunum.

Björgunaraðgerðirnar hefðu verið „efldar“, sagði nepalski leiðtoginn Shah í Facebook-færslu seint í gær og benti á að flóðin væru „ekki venjulegur“ atburður.

„Þetta atvik sýnir að áhættan sem við stöndum frammi fyrir á Himalajasvæðinu eykst samhliða loftslagsbreytingum. Það er kominn tími til að við vekjum af meiri krafti athygli alþjóðasamfélagsins á þeim hamförum sem við verðum fyrir vegna loftslagsbreytinga,“ skrifaði Shah í færslunni.

Í frétt BBC segir að aðeins hafi tekist að bera kennsl á um fjögur prósent þeirra sem hafa fundist. Opinber tala látinna Tíbetmegin er 16 og 546 er saknað, samkvæmt kínverskum ríkisfjölmiðlum.

Í frétt BBC segir að myndefni af flóðunum hafi verið undir mikilli ritskoðun í Kína. Kínversk yfirvöld hafi beitt fólk „stjórnsýsluviðurlögum“ sem geta falið í sér áminningar, sektir eða skammvinnar handtökur vegna vangaveltna á netinu um að mannfallið sé mun meira en opinberar tölur gefa til kynna.


Tengdar fréttir

Mögu­leiki á stórum flóðbylgjum úr ís­lenskum jökul­lónum

Ýmis líkindi eru á milli aðstæðna sem virðast hafa valdið mannskæðu skyndiflóði í Nepal og Tíbet og á Íslandi þó að umhverfið sé gerólíkt. Íslenskur jarðfræðingur segir að stórar flóðbygjur geti komið úr jökullónum ef skriður falla í þau.

Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum

Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað.

Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað

Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×