Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2026 21:07 Sergei Lavrov hefur verið utanríkisráðherra Rússlands um árabil. AP/Ramil Sitdikov Utanríkisráðherra Rússlands segir að leiðtogar Atlantshafsbandalagsins ætli sér að nota norðurslóðir til að halda aftur af Rússlandi og bandamönnum ríkisins. Hann segir að Rússar muni bregðast við öllum fjandsamlegum aðgerðum gegn Rússlandi á norðurslóðum. Sergei Lavrov heldur því fram að með refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi, vegna innrásar Rússa í Úkraínu, sé verið að grafa undan réttmætum rétti Rússa til alþjóðlegrar samvinnu. „NATO og önnur Vesturlönd fara ekki leynt með raunveruleg markmið sín og lýsa því opinberlega yfir að þau ætli að gera norðurslóðir að nýrri víglínu í andstöðu við þróun og framgang Rússlands og samþekkjandi bandamanna.“ Þá segir Lavrov að Rússar hafi áhuga á samstarfi á norðurslóðum og nefnir sérstaklega Kína, Indland, Brasilíu, Indónesíu, Íran og önnur ríki úr BRICS í því samhengi. Þetta er meðal þess sem Lavrov skrifaði í grein sem birt var á vef utanríkisráðuneytisins um málefni norðurslóða. Í greininni segir Lavrov að hervæðing NATO á norðurslóðum auki hættuna á átökum sem gætu haft „hörmulegar afleiðingar“. BRICS hét upprunalega BRIC og var nokkurs konar efnahagsbandalag Brasilíu, Rússlands, Indlands og Kína sem myndað var árið 2006 gegn hópum eins og G7 og G20. Suður-Afríka bættist svo í hópinn árið 2010 og nafnið varð BRICS. Leiðtogar ríkjanna funda árlega og þetta árið bættust Íran, Egyptaland, Eþíópía og Sameinuðu arabísku furstadæmin við. Sádi-Arabía hefur einnig tekið þátt í starfinu án þess að vera beinn meðlimur í BRICS. Fjöldi annarra ríkja eru þar að auki samstarfsaðilar BRICS. Spennan hefur aukist nokkuð á norðurslóðum á undanförnum árum. Mikilvægi norðurslóða hefur aukist töluvert með hopandi hafís og opnun nýrra siglingaleiða milli Asíu og Evrópu, auk aukins áhuga á nýtingu á auðlindum á svæðinu. Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, lét árið 2019 gera skýrslu um stöðu utanríkismála, stefnumörkun og áherslur en þar kom fram að vaxandi hernaðarumsvif Rússa á norðurslóðum væru áhyggjuefni. Sjá einnig: Oft verið bjartara yfir samskiptum Íslands og Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti í fyrra að hann ætlaði að fjölga hermönnum á norðurslóðum, á sama tíma og hann sakaði aðildarríki Atlantshafsbandalagsins um hervæðingu á svæðinu. Sjá einnig: Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Pútín sagði að Rússar, sem væru stærsta veldið á norðurslóðum, myndu aldrei sætta sig við að brotið yrði á fullveldi þeirra. Hann sagði Rússa aldrei hafa ógnað neinum á norðurslóðum en til stæði að auka viðbragðsgetu þar og fara í hernaðaruppbyggingu og nútímavæðingu. Þar að auki ætti að bæta innviði á svæðinu, eins og flugvelli og hafnir. Fyrr á árinu var tilkynnt að Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Nefndi Norðurskautsráðið sérstaklega en ekki Úkraínu Ráðherrann nefnir sérstaklega Norðurskautsráðið og að starfsemi þess hafi verið svo gott sem lömuð frá mars 2022. Það segir Lavrov að sé vegna „aðgerða vestrænna aðildarríkja“ en nefnir ekki innrásina í Úkraínu. Hann segir að Rússar séu tilbúnir til að taka aftur fullan þátt í starfsmið ráðsins, en eingöngu ef allir aðilar séu tilbúnir til að taka tillit til „lögmætra hagsmuna“ annarra. Norðurskautsráðið var stofnað árið 1996 sem vettvangur samstarfs um sjálfbæra þróun á norðurslóðum, með virkri þátttöku frumbyggja á svæðinu. Aðildarríki ráðsins eru átta: Bandaríkin, Finnland, Ísland, Kanada, Konungsríkið Danmörk, Noregur, Rússland og Svíþjóð. Auk þess eiga sex samtök frumbyggja á norðurslóðum sæti í ráðinu. Sjá einnig: Meirihluti Norðurskautsráðs fordæmir innrás formannsins Rússlands Lavrov segir Rússa einnig tilbúna fyrir það að ráðamenn í NATO haldi áfram að reyna að ræða málefni norðurslóða án Rússa. Slíkt myndi grafa undan trúverðugleika Norðurskautsráðsins „Komi til þessa höfum við landsvæði, innviði, tækni og áreiðanlega bandamenn fyrir sameiginleg verkefni til að ná fram áætlunum Rússlands á norðurslóðum.“ Athygli hefur vakið að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og stofnandi Hringborðs norðurslóða, deildi grein Lavrovs og sagði að fyrir alla sem hefðu áhuga á norðurslóðum og alþjóðamálum væri grein utanríkisráðherrans lykilskjal. For all involved and interested in #Arctic - #geopolitical affairs this declaration by #Lavrov is a key document. https://t.co/FXFtfEH8Xi— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) August 31, 2026 Lavrov segir í greininni að það eina sem þurfi til að sjá að Rússland sé og verði alltaf leiðandi ríki á norðurslóðum sé að kíkja á landakort. Þá segir hann að hagsmunir Rússa á norðurslóðum muni verða meiri með tímanum og breyttu veðurfari. Rússar muni halda uppbyggingu á norðurslóðum áfram. Þá segir ráðherrann að andstæðingar Rússlands ættu fyrir löngu síðan að vera búnir að átta sig á því að samskipti við Rússland gegnum refsiaðgerðir og ógnanir virki ekki. Slíkum aðgerðum verði áfram svarað. „Rússland kýs uppbyggilegt samtal um allan heim en ef þörf krefur munum við verja hagsmuni okkar með öllum ráðum.“ Í fyrra sjósettu Rússar kjarnorkuknúna beitiskipið Nakhimov aðmírál. Það hafði áður verið í slipp í rúm tuttugu og fimm ár en á að verða nýtt flaggskip norðurflota Rússlands. Barents Observer sagði frá því á dögunum að útlit væri fyrir að Rússar ætluðu sér að gera frekari tilraunir á norðurslóðum með kjarnorkuknúna eldflaug sem heitir „Burevestnik“ en kölluð hefur verið „fljúgandi Chernobyl“. Það er vegna þess að vopnið er talið skilja eftir sig geislavirka slóð. Eldflaugin er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum. Þar sem stýriflaugin á að vera knúin með kjarnorku á drægni hennar að vera svo gott sem ótakmörkuð. Sérfræðingar hafa þó áhyggjur af því að slys geti valdið mikilli geislavirkni. Rússar skutu fyrstu eldflauginni af þessari gerð á loft frá eyjaklasanum Novaya Zemlya í fyrra. Uppfært: Lavrov nefndi Norðurskautsráðið í grein sinni en ekki Hringborð norðurslóða, eins og stóð fyrst í greininni. Það hefur verið lagfært. Rússland Norðurslóðir Öryggis- og varnarmál Innrás Rússa í Úkraínu NATO Tengdar fréttir Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17. ágúst 2026 21:55 Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Ísland og norðurslóðir eru nú nokkuð í umræðunni í tengslum við leiðtogafund NATÓ sem fram fór í Tyrklandi. Sú áhersla hefur aukist verulega og mun aukast á næstunni að sögn Alberts Jónssonar, sérfræðings í alþjóðastjórnmálum, nú þegar hafísinn hörfar og aðgengi eykst. 9. júlí 2026 23:35 Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Sjá meira
BRICS hét upprunalega BRIC og var nokkurs konar efnahagsbandalag Brasilíu, Rússlands, Indlands og Kína sem myndað var árið 2006 gegn hópum eins og G7 og G20. Suður-Afríka bættist svo í hópinn árið 2010 og nafnið varð BRICS. Leiðtogar ríkjanna funda árlega og þetta árið bættust Íran, Egyptaland, Eþíópía og Sameinuðu arabísku furstadæmin við. Sádi-Arabía hefur einnig tekið þátt í starfinu án þess að vera beinn meðlimur í BRICS. Fjöldi annarra ríkja eru þar að auki samstarfsaðilar BRICS.
Rússland Norðurslóðir Öryggis- og varnarmál Innrás Rússa í Úkraínu NATO Tengdar fréttir Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17. ágúst 2026 21:55 Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Ísland og norðurslóðir eru nú nokkuð í umræðunni í tengslum við leiðtogafund NATÓ sem fram fór í Tyrklandi. Sú áhersla hefur aukist verulega og mun aukast á næstunni að sögn Alberts Jónssonar, sérfræðings í alþjóðastjórnmálum, nú þegar hafísinn hörfar og aðgengi eykst. 9. júlí 2026 23:35 Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Sjá meira
Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17. ágúst 2026 21:55
Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Ísland og norðurslóðir eru nú nokkuð í umræðunni í tengslum við leiðtogafund NATÓ sem fram fór í Tyrklandi. Sú áhersla hefur aukist verulega og mun aukast á næstunni að sögn Alberts Jónssonar, sérfræðings í alþjóðastjórnmálum, nú þegar hafísinn hörfar og aðgengi eykst. 9. júlí 2026 23:35