Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Lovísa Arnardóttir skrifar 2. september 2026 07:19 Tyler Robinson neitar sök. Vísir/EPA Tyler Robinson, 23 ára karlmaður frá Utah, neitar sök í ákæru á morðinu á hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk. Dómari hefur úrskurðað að saksóknarar megi krefjast dauðarefsingar í réttarhöldunum.
Robinson neitar sök í ákæru um morð auk sex annarra ákæruliða vegna skotárásarinnar á Kirk á háskólasvæði 10. september 2025. Robinson gaf sig fram við lögreglu daginn eftir morðið, ásamt fjölskyldu sinni og nágranna. Næst á hann að mæta fyrir dóm 23. október en þá er búist við að dagsetning réttarhaldanna verði ákveðin. Fjallað er um málið á vef BBC. Kirk, sem var hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Bandaríkjaforseta, var skotinn til bana á viðburði í háskóla í Utah í september 2025. Tveimur dögum síðar var Robinson handtekinn grunaður um morðið. Ekkja Kirks, Erika, móðir tveggja barna þeirra, og foreldrar hans, Robert og Kathryn, voru viðstödd þinghaldið í gær. Erika Kirk, ekkja Charlie Kirk, hefur verið viðstödd réttarhöldin. Vísir/EPA Fjölskyldan sendi yfirlýsingu Í yfirlýsingu sem fjölskyldan sendi frá sér eftir þinghaldið sagði hún að ákvörðun dómarans væri „mikilvægt skref“ í „leit þeirra að réttlæti“. „Hvert skref í þessu ferli ber með sér þunga alls þess sem morðið á Charlie hefur tekið frá fjölskyldu hans, sérstaklega börnunum hans sem munu alast upp án föður síns,“ sagði í yfirlýsingunni. Í umfjöllun BBC um málið segir að meðal gagna málsins séu erfðasýni sem eiga að tengja Robinson við morðvopnið og aðra muni sem fundust á vettvangi, játningar sem hann er sagður hafa gefið ástvinum sínum og myndbandsupptaka af yfirheyrslu á herbergisfélaga hans og kærasta, Lance Twiggs. „Það er fjall af sönnunargögnum sem sýna að hann er sá sem skaut,“ sagði saksóknarinn Ryan McBride við dóminn á þriðjudag. Hann fór yfir myndbandsupptökur sem hann sagði sýna Robinson „klæddan til að drepa“ á háskólasvæðinu daginn sem skotárásin átti sér stað. „Við vitum að hinn ákærði er skotmaðurinn ... í fyrsta lagi vegna myndbandsgagnanna; í öðru lagi vegna DNA-sýnanna; í þriðja lagi vegna játninga hans; og í fjórða lagi vegna óbeinna sönnunargagna,“ sagði McBride. Saaksóknarinn Ryan McBride við störf í gær. Vísir/EPA Herbergisfélagi Robinsons, Twiggs, bar vitni um að hinn ákærði hefði játað skotárásina, grátið og sagt að hann vildi að hann hefði ekki gert það. Myndbandsupptaka af yfirheyrslu yfir Twiggs hjá saksóknurum var spiluð við þinghaldið í júlí. Í máli saksóknara kom einnig fram að Robinson hefði verið í sambandi við herbergisfélaga sinn og litið á íhaldssamar skoðanir Kirks, einkum á málefnum trans fólks, sem „viðurstyggilegar“ og að þær hafi verið tilefni morðsins. Kannaði svæðið fyrir árásina Við þinghald málsins í sumar kom fram að Robinson hafði fyrir árásina kannað háskólasvæðið ítrekað daginn sem Kirk var skotinn. Hann hafði samskipti við meðlimi Turning Point USA og fékk sér Chick-fil-A áður en hann sneri aftur í öðrum fötum. „Nýju fötin innihéldu langar buxur til að hylja riffilinn sem hann hafði falið niður um buxurnar,“ sagði McBride á þriðjudag. Samkvæmt sönnunargögnum saksóknara sem lögð voru fram við þinghaldið í júlí fannst DNA Robinsons á riffli afa hans sem hafði verið falinn á skógi vöxnu svæði nálægt háskólasvæðinu eftir skotárásina. DNA hans fannst einnig á handklæði sem rifflinum hafði verið vafið inn í og á skrúfjárni sem fannst á vettvangi.
Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Ákveðið verður í dag, mánudag, hvort að upphaf réttarhaldanna gegn manninum sem grunaður er um að hafa myrt Charlie Kirk verði opið almenningi og fjölmiðlum. Verjendur mannsins, sem heitir Tyler Robinson, vilja að réttarhöldin verði lokuð og hafa einnig krafist þess að mikið af sönnunargögnum í málinu verði ekki opinberuð á þeim grunni að þau gætu haft áhrif á mögulega kviðdómendur. 1. júní 2026 07:48 Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks. 20. maí 2026 21:28 Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Lögmenn mannsins sem grunaður er um að hafa skotið Charlie Kirk til bana hafa beðið um að fyrirtöku í málinu gegn honum verði frestað um hálft ár. Segjast þeir þurfa tíma til að fara betur yfir sönnunargögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á rifflinum sem talinn er hafa verið notaður. 31. mars 2026 15:50 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira
Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Ákveðið verður í dag, mánudag, hvort að upphaf réttarhaldanna gegn manninum sem grunaður er um að hafa myrt Charlie Kirk verði opið almenningi og fjölmiðlum. Verjendur mannsins, sem heitir Tyler Robinson, vilja að réttarhöldin verði lokuð og hafa einnig krafist þess að mikið af sönnunargögnum í málinu verði ekki opinberuð á þeim grunni að þau gætu haft áhrif á mögulega kviðdómendur. 1. júní 2026 07:48
Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks. 20. maí 2026 21:28
Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Lögmenn mannsins sem grunaður er um að hafa skotið Charlie Kirk til bana hafa beðið um að fyrirtöku í málinu gegn honum verði frestað um hálft ár. Segjast þeir þurfa tíma til að fara betur yfir sönnunargögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á rifflinum sem talinn er hafa verið notaður. 31. mars 2026 15:50