Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lendingarnir í Magdeburg í eld­línunni

Andri Broddason skrifar
Ómar Ingi Magnússon hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Magdeburg síðustu ár.
Ómar Ingi Magnússon hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Magdeburg síðustu ár. Ronny Hartmann/Getty Images

Fyrsti fimmtudagurinn í september ætlar að bjóða upp á hörkuslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Einnig fer fyrsti hringur Omega European Masters af stað á DP World mótaröðinni.

Magdeburg og Füsche Berlin mætast í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en þetta voru efstu tvö lið deildarinnar á síðasta tímabili. Þar endaði Magdeburg á því að vinna deildina en Íslendingarnir Gísli Þorgeir Kristjánsson, Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon eru lykilmenn í liðinu.

Í dag fer einnig fram fyrsti hringur á Omega European Masters-mótinu sem fer fram á DP World-mótaröðinni. Mótið fer fram á Crans-sur-Sierre-golfvellinum í Sviss og má búast við hörkubaráttu um sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×