Neytendur

Sveru dósirnar snúa aftur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Til vinstri er mjóa dósin sem fólk hefur drukkið gos úr síðustu ár og til hægri er svera dósin sem er snúin aftur, þó svo að bjórdrykkjumenn hafi aldrei kvatt hana. 
Til vinstri er mjóa dósin sem fólk hefur drukkið gos úr síðustu ár og til hægri er svera dósin sem er snúin aftur, þó svo að bjórdrykkjumenn hafi aldrei kvatt hana.  Vísir/Anton Brink

Nú er hægt að kaupa Kristal, Pepsi Max og Appelsín í gömlu sveru dósunum sjö árum eftir breytingu. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir breytinguna þó eingöngu tímabundna og að hoj og slank dósirnar muni snúa aftur innan skamms. 

Það hefur vakið athygli neytenda að bæði Kristall og Pepsi Max fást í lægri dósum en þeir hafa fengið að venjast síðustu ár. Bjórinn hefur verið drukkinn úr sveru dósunum en gosið úr hærri dósunum. 

Ætlir þú þér að kaupa Kristal í dós úti í búð í dag eru allar líkur á því að þú fáir hann í svipaðri dós og þessi til vinstri.Vísir/Anton Brink

Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, segir breytinguna eingöngu tímabundna vegna skorts á háu dósunum. Sala hafi gengið vonum framar upp á síðkastið og því þurfi að nota sveru dósirnar á meðan beðið er eftir háu dósunum. 

Við framleiðslu á háu dósunum er notað minna magn af áli en við framleiðslu hinna. Rúmmálið er það sama, 330 millilítrar, en lokið er stærra á sveru dósunum og það er þykkara en aðrir hlutar dósarinnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×