Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar 7. september 2026 10:01 Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur birt grein um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst sl. Tæknilega er greinin rétt en hann fellur í sömu gryfju og já-sinnar og stækkunarstjóri ESB að slúðra. Slúður er fullyrðingar sem ekki eru studdar með rökum. Haukur er að því leyti skrárri en stækkunarstjórinn að hann gefur í skyn að rannsaka þurfi báðar hliðar, þ.e. fjáraustur til já- og nei-sinna, og heldur sig nokkuð við þær reglur sem gilda um kosningar í siðuðum löndum. Stækkunarstjórinn segir án sannana að Maga-hreyfingin („Make America Great Again, hreyfing Trumps“) hafi haft áhrif án þess að benda á nokkuð því til sönnunar. Fleiri já-sinnar hafa komið með innihaldslaust slúður, svo sem bróðir Dags B. Eggertssonar sem starfar og býr í Ameríku. Fullyrðingarnar snúa yfirleitt að því að fjársterkir aðilar hafi haft óeðlileg áhrif, fullyrðingar Nei-sinna hafi verið uppspuni og Haukur bendir á að hótanir gagnvart utanríkisráðherra skipti máli og það þurfi að rannsaka hvort forsvarsmenn Nei-hreyfingar hafi tengst þeim. Hótanir þarf að rannsaka og eru aldrei afsakanlegar. Þegar rætt er um blekkingar þá kasta Já-sinnar steinum úr glerhúsi. Málflutningur þeirra byggðist á blekkjandi fullyrðingum eins og „já til að sjá“ í stað þess að segja hvað ESB væri og hvaða undanþágur væru mögulegar. Önnur villandi setning var „kíkja í pakka“ eins og einhver jólaglaðningur væri í boði. Þá lofuðu þeir stöðugleika án þess að taka fram hvaða gjald þyrfti að greiða fyrir hann. Skýrsla sem fjármálaráðherra lét gera benti á að vissir kostir væru við krónuna í dýpri kreppum og stöðugleiki fæst ekki án evru. Loforð um lægra matarverð tók ekki inn fákeppni, langar flutningsleiðir og há laun hér. Ekki hefur verið skýrt út hvernig vöruverð myndi lækka við ofangreind skilyrði. Lægra vöruverð fæst m.a. með innflutningi á tollfrjálsum landbúnaðarafurðum en á móti verðum við að styrkja landbúnað með skattfé. Þá hafa fullyrðingar um að kaupgeta á Íslandi sé ekki minni en kaupgeta flestra ríkja ESB þótt verð hér sé hátt ekki verið hraktar. Segja má að Nei-sinnar hafi teygt sig langt þegar þeir töluðu um Evrópuher sem Íslendingar gætu verið skyldaðir til að taka þátt í. Því var ekki haldið fram að hann væri kominn heldur var bent á þá staðreynd að ESB tekur stöðugum breytingum og aðild að því þýðir að sumar breytingar í framtíðinni sem henta Evrópu gætu verið okkur óhagstæðar. Varðandi fjáraustur í Nei-hreyfinguna þá virtist mér báðar hreyfingarnar hafa getað auglýst svipað og auðvelt væri að kanna þetta. Morgunblaðið gaf nei-hliðinni meira pláss en já-hliðinni. Öllum mátti vera ljóst fyrir hvað Morgunblaðið stendur. Það fór ekki leynt. Staðreyndin er sú að ástæða þess að fullyrðingar um að auðug fyrirtæki og einstaklingar hafi haft áhrif á kosningarnar eru bara slúður er vegna þess að ríkisstjórnin setti ekki lög um að hreyfingar yrðu að gera grein fyrir fjárframlögum yfir ákveðnu lágmarki. Ef litið er til skoðanakannana og niðurstöðu kosninga er ljóst að þeir sem sögðu nei voru að meirihluta til þeir sem höfðu minni menntun og fólk úti á landi. Það er fólk sem heldur uppi grunnatvinnuvegum þjóðarinnar sem eru allt öðruvísi og búa við önnur skilyrði en atvinnuvegir á meginlandi Evrópu. Nei-ið var því ekki úr lausu lofti gripið. Það eina sem líkist MAGA í þessari kosningabaráttu eru innihaldslausir frasar Já-hreyfingarinnar en íslensk þjóð er betur að sér en sá hluti Ameríkana sem lét blekkjast af frösum. Stjórnsýslufræðingurinn veit að ráðherrar, öfugt við alþingismenn, eru embættismenn og eiga ekki að blekkja. Þeir áttu að leggja fyrir þjóðina bæði kosti og galla sem þeir gerðu ekki. Í grein sinni segir Haukur að leiðrétta hefði átt missagnir. Það er erfitt þegar stjórnvöld standa að blekkingum. Þjóðin hefur hafnað utanríkisstefnu utanríkisráðherra. Hún hefur hafnað viðræðum um aðild að ESB. Ráðherra sem gengur ekki í takt getur ekki verið talsmaður hennar út á við. Þjóðin hefur talað – hún vill ekki í ESB, ekki einu sinni að skoða í pakkann – þá á að afturkalla umsókn um aðild. Annað er vanvirðing við kjósendur. Valdið er nefnilega hjá fólkinu sem góðfúslega hefur falið alþingismönnum og þar með ríkisstjórn það tímabundið. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar