Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Andri Broddason skrifar 7. september 2026 09:00 Krystian Bielik var heitt í hamsi um helgina þegar hann mætti Portsmouth. Adam Fradgley/Getty Images Atvik í leik Cardiff og Portsmouth í ensku B-deildinni er komið á borð lögreglunnar. Ágreiningur var milli Krystian Bielik, leikmanns Cardiff, og stuðningsmanns Portsmouth.
Cardiff og Portsmouth mættust í fimmtu umferð ensku B-deildarinnar í fótbolta á laugardaginn. Þar ætlaði Krystian Bielik að sækja bolta sem hafði varið upp í stúku til þess að taka innkast. Ungur Portsmouth-stuðningsmaður var lengi að gefa honum boltann og kastaði svo boltanum fram hjá Bielik. Cardiff-leikmaðurinn hafði litla þolinmæði fyrir atvikinu og greip í hálsmálið á stuðningsmanninum við litla hrifningu annarra stuðningsmanna Portsmouth í kring. Lögreglan á svæðinu hefur staðfest að Bielik er undir rannsókn fyrir líkamsárás. So Bielek grabs a kids throat, kid defends himself, and kid gets thrown out. Portsmouth FC should give off about this and Bielek needs suspending! pic.twitter.com/9Np1k8Xl3i— Charlie Barnes (@ChaltJames) September 5, 2026 Eftir leikinn var tekið viðtal við Brian Barry-Murphy, þjálfara Cardiff, og sagði hann að Bielik hefði verið sleginn í andlitið af stuðningsmanni. Cardiff City boss Brian Barry-Murphy gives his thoughts on the incident involving Krystian Bielik and a Portsmouth fan. #BBCFootball pic.twitter.com/jsNX4QGoVN— BBC Sport Wales (@BBCSportWales) September 5, 2026 Bæði félög hafa sagt að þau viti af atvikinu en lítið verði sagt um málið á meðan það er undir rannsókn. Ljóst er að báðir aðilar eiga sök og þarf að passa að svona mál komi ekki upp aftur. Fótboltaleikur á að vera öruggur vettvangur fyrir fjölskyldur til að koma saman og skemmta sér og öruggur staður fyrir leikmenn til að spila.
Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira