Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar 7. september 2026 15:33 Dagana 22.–24. október 2025 var haldin norræn-baltísk ráðstefna í Reykjavík um neysluvatn, áhættumat og viðbúnað vegna mengunar og neyðarástands. Yfirskrift ráðstefnunnar var Drinking Water as Food and Critical Infrastructure – Strengthening Preparedness and Resilience. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Matvælastofnun komu sameiginlega að skipulagningu ráðstefnunnar ásamt öðrum samstarfsaðilum. Á ráðstefnunni tóku þátt sérfræðingar og fulltrúar stjórnvalda frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Þar var meðal annars fjallað um öryggi vatnsveitna, neyðarviðbúnað, áhættustýringu og mikilvægi þess að líta á neysluvatn sem hluta af grunninnviðum samfélagsins. Ein af lykilspurningum ráðstefnunnar var hvernig tryggja megi aðgang að öruggu neysluvatni við neyðarástand og alvarlegar truflanir á innviðum. Meðal fyrirlesara var fulltrúi norska hersins og fulltrúi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þá tók yfirmaður NATO á Íslandi þátt í ráðstefnunni. Ráðstefnan var hluti af norrænu-baltísku samstarfi sem hefur um árabil staðið fyrir sambærilegum ráðstefnum, að jafnaði árlega, þó samstarfið hafi legið niðri um tíma vegna Covid-faraldursins. Ákveðið var að bjóða þátttakendum frá Eystrasaltsríkjunum styrk vegna raunverulegs ferðakostnaðar, í samræmi við það fyrirkomulag sem áður hafði verið notað í samstarfinu. Norræna ráðherranefndin styrkti ráðstefnuna og auk þess lágu fyrir vilyrði Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða og Atvinnuvegaráðuneytisins um viðbótarfjármögnun ef á þyrfti að halda. Ráðstefnan sjálf tókst vel. Hún var fagleg, gagnleg og mikilvægur vettvangur fyrir ríki sem eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að vatnsöryggi, viðbúnaði og lýðheilsu. Slíkt samstarf byggir á trausti, fagmennsku og því að staðið sé við það sem lofað er. Því miður hefur eftirleikurinn ekki verið í sama anda. Nú, tæpu ári síðar, er enn ólokið máli sem hefði átt að vera einfalt stjórnsýslulegt formsatriði: uppgjör og greiðsla ferðastyrkja til þátttakenda frá Eystrasaltsríkjunum. Samkvæmt upplýsingum sem ég hef fengið frá þátttakendunum sjálfum hefur aðeins eitt flugfar verið endurgreitt. Annar ferða- og/eða hótelkostnaður virðist enn ógreiddur. Þátttakendur hafa ítrekað sent fyrirspurnir til mín og Matvælastofnunar og óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hefur ekki fengist fullnægjandi skýring á því hvers vegna málið hafi dregist svo lengi og hvenær uppgjöri verði lokið. Þetta er ekki stórt mál í fjárhagslegu samhengi íslenskrar stjórnsýslu. En það er stórt mál í samhengi alþjóðlegrar samvinnu og trausts. Þegar erlendir samstarfsaðilar sitja uppi með kostnað sem þeim var ætlað að fá endurgreiddan og fá ekki skýr svör um hvenær málið verði leyst hefur það áhrif á trúverðugleika okkar. Það hefur áhrif á norrænt-baltískt samstarf og það getur haft áhrif á vilja fólks til að taka þátt í sambærilegum verkefnum í framtíðinni. Eftirfylgni ráðstefnunnar hefur einnig verið ófullnægjandi að öðru leyti. Matvælastofnun tók að sér að vinna skýrslu um ráðstefnuna, en þeirri vinnu hefur ekki verið lokið. Þá var lagt upp með að erindi ráðstefnunnar yrðu gerð aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Þegar það gekk ekki eftir endaði ég á því að setja dagskrá og erindi upp á vef Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Þetta gerist á sama tíma og umfangsmiklar breytingar eru fyrirhugaðar á stjórnsýslu eftirlitsmála og verkefni færð frá sveitarfélögum til ríkisins. Í þeirri umræðu hefur mikið verið rætt um aukna skilvirkni, samræmingu og faglega stjórnsýslu. Þá er eðlilegt að spyrja hvort reynslan af þessu máli gefi tilefni til þess trausts sem svo umfangsmikil tilfærsla verkefna krefst. Ekki fékkst styrkur frá Norrænu ráðherranefndinni til að halda ráðstefnuna árið 2026 og nú liggur fyrir umsókn um næsta fund í Noregi árið 2027. Ég fullyrði ekki að þessi mál tengist. Hitt er augljóst að trúverðugleiki samstarfsins styrkist ekki ef fjárhagslegu uppgjöri fyrri fundar er enn ólokið þegar sótt er um stuðning við þann næsta. Ég hef ítrekað fylgt málinu eftir og að lokum óskað formlega eftir því að Matvælastofnun upplýsti hvaða greiðslur hefðu verið inntar af hendi, hvaða greiðslur væru enn ógreiddar, hvers vegna málið hefði dregist og hvenær þátttakendur gætu vænst greiðslu. Jafnframt var óskað eftir svari innan tiltekins frests. Sá frestur leið án þess að fullnægjandi svör bærust. Miðvikudaginn 2. september átti ég síðan fund með forstjóra Matvælastofnunar þar sem málið var meðal annars rætt. Nú, fimm dögum síðar og tæpu ári eftir ráðstefnuna, hefur uppgjörinu enn ekki verið lokið. Ég tel mig því hafa fullreynt að fá málið leyst eftir hefðbundnum stjórnsýslulegum leiðum og sé mér ekki annað fært en að vekja athygli á því opinberlega. Í ljósi þess hve lengi málið hefur dregist tel ég eðlilegt að Matvælastofnun ljúki uppgjörinu tafarlaust. Reynist stofnuninni það ekki unnt ætti Atvinnuvegaráðuneytið að taka málið að sér, afla heildaryfirlits um útistandandi greiðslur og tryggja að þátttakendur fái greitt það sem þeim var lofað. Þar sem fyrir liggur að fjármögnun átti að vera fyrir hendi ætti ekki að vera óyfirstíganlegt verkefni að ljúka þessu máli með sómasamlegum hætti. Stjórnsýsla snýst ekki aðeins um reglur, verkferla og skipurit. Hún snýst líka um ábyrgð. Hún snýst um að standa við fyrirheit, svara erindum og leysa einföld mál áður en þau verða að vandræðalegum trúnaðarbresti. Það er óásættanlegt að erlendir samstarfsaðilar Íslands þurfi mánuðum saman að reka á eftir greiðslum vegna ráðstefnu sem haldin var í góðri trú og í anda norræns-baltísks samstarfs. Þetta mál þarf ekki fleiri fundi, fleiri óljós svör eða fleiri tafir. Það þarf einfaldlega að klára það. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun