„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Agnar Már Másson og Telma Tómasson skrifa 7. september 2026 21:28 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til.
Ríkisstjórnin kynnti fjárlagafrumvarp sitt á blaðamannafundi og boðaði þar hallalaus fjárlög fyrir 2027. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir fimm milljarða króna afgangi. Aðhald á útgjaldahliðinni nemur 44 milljörðum króna og nýjar tekjuráðstafanir 22,6 milljörðum. Krónutölugjöld ríkisins eiga almennt að hækka um 5,2 prósent og kílómetragjaldið enn meira, eða 16%. Bjarni segir fjárlögin vekja upp áhyggjur af verðmætasköpun í landinu enda hafi hagvöxtur verið lítill síðustu þrjú ár. „Og [við] höfum verið að bíða eftir því að vextir myndu lækka með minni verðbólgu,“ bætir hann við en vextir verðbólga mælist nú 5,3 prósent. „En þá er komið með mjög miklar skattahækkanir, upp á milljarða,“ heldur Bjarni, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, áfram og tekur fram að skattahækkanirnar verði greiddar af fyrirtækjum sem eigi að rísa undir verðmætasköpun. Þetta sé áhyggjuefni. Hvaða skilaboð finnst þér þetta vera í aðdraganda kjarasamningsgerðar? „Mér finnst þetta lýsa of lítilli trú á verkefninu,“ svarar hann. Bjarni nefnir að það sé áberandi í ríkisfjármálunum undanfarin misseri að ríkisstjórnin auki við réttindi í bótakerfunum. „Við sjáum það í þessu fjárlagafrumvarpi að bætur muni hækka mun meira heldur en áætlað er að laun hækki á næsta ári.“ Engin tilraun sé gerð til að taka á því að laun innan opinbera kerfisins hafi hækkað umfram framleiðnivöxt og verðmætasköpun undanfarin ár. „Ef menn ætla sér ekki að ná stjórn á því hvernig launamyndun á sér stað í landinu og hleypa bótakerfinu dálítið með lausan tauminn, þá verður ekki nema von að menn komist að þeirri niðurstöðu að lausnin felist ekki í verðmætasköpun heldur í því að það hafi skort tekjur. Þá er fundið upp á því að hækka skatta.“ Lausnin sé að gefa fyrirtækjum súrefni og skilyrði til þess að vaxa. „Þá muni þessi vandamál hverfa enda haldi menn aftur af launahækkunum og geri ekki um of í bótakerfunum,“ segir hann. Bjarni segir hljóðið þungt í fyrirtækjum landsins en til stendur að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent og koma á fót gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. „[Í byggingargeiranum] er erfitt um þessar mundir og ekki bjart framundan. Ferðaþjónustan hefur glímt við mjög sveiflukennt umhverfi í langan tíma; við höfum séð flugfélög fara á hausinn, við í gegnum Covid. Menn hafa þar fjárfest fyrir mjög marga milljarða í því að fá til landsins fleiri ferðamenn,“ segir framkvæmdastjórinn og bætir við: „Það er eins og það megi ekki sjá þessa þróun halda áfram og hafa trú á að hún geti skilað ríkissjóði og landsmönnum öllum ávinningi með komu ferðamanna og auknum umsvifum víða um landið. Nei, það verður bara gengið rakleiðis í það verk að hækka skattana.“ Þetta sé spurning um það hvaða viðhorf menn hafi til verðmætasköpunar í landinu. „Það hafi ekki verið neinn framleiðnivöxtur um neitt skeið og hann átti að vera forsenda þeirra kjarasamninga sem eru í gildi. Þannig að fyrirtækin geta ekki verið hress með þessa stöðu.“ Hann sér fram á erfitt haust með tilliti til hás vaxtastigs og hárra launahlutfalla í samanburði við önnur Evrópulönd. „Við á Íslandi skilum út í laun hæsta hlutfalli af verðmætasköpun ríkja innan OECD, og þegar verðbólguhorfur eru ekki nógu góðar og seðlabankinn nýlega búinn að hækka [stýri]vextina þá voru menn ekkert allt of hressir, en að sjá fram á ríkisfjármálastefnu þar sem bætur hækka umfram laun og skattar eru hækkaðir um tugi milljarða; þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni.“
Fjárlagafrumvarp 2027 Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira