„Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Oddur Ævar Gunnarsson og Samúel Karl Ólason skrifa 7. september 2026 18:33 Eiríkur Örn Norðdahl, Bubbi Morthens og Margrét Tryggvadóttir segja þróunina vonda. Rithöfundar og listamenn eru hvumsa yfir því að gert sé ráð fyrir því að framlög til bókasafnssjóðs verði skorin niður samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir þetta munu bitna mest á viðkvæmasta hópi rithöfunda. „
Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Þetta er bein tekjuskerðing fyrir rithöfunda og þýðendur – og aldrei upphæð sem samið er um, við ráðum engu hvaða endurgjald við fáum fyrir afnot af bókum okkar á bókasöfnum, höfum ekkert að segja, alltaf bara ný og ný upphæð á hverju ári. Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ spyr Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Fleiri rithöfundar og listamenn taka undir með Eiríki. Þeirra á meðal er tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Morthens. „Þetta er svipað að bjóða uppá brauð og vatn fyrir andlega heilsu þjóðarinnar.“ Friðrik Erlingsson rithöfundur birtir einnig færslu þar sem hann segir í kaldhæðni að um „glæsilegt framlag til íslenskrar tungu“ sé að ræða. Stærsti tekjupósturinn fyrir marga höfunda Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands segir lækkunina sérstaklega mikið áfall fyrir barnabókarithöfunda og rithöfunda sem skrifi frekar afþreyingarefni. Fyrir þá höfunda, sem fæstir fái listamannalaun, sé um mjög stóran tekjupóst að ræða „Og jafnvel stærsti tekjupósturinn, því við erum svo fá sem erum atvinnuhöfundar á Íslandi, kannski einhver hundrað manns. Það er bara alveg svakalegt að fá svona tekjufall. Í stóra samhenginu eru þetta litlir peningar en þetta er alveg rosalega viðkvæmur hópur og tekjulágur.“ Bókasafnssjóður höfunda hafi verið aukinn árið 2021 eftir að samkomulag náðist um að greiða einnig fyrir útlán hjá Hljóðbókasafni Íslands. Í fyrra hafi sjóðurinn verið skorinn niður um 22,8 prósent. Margrét segir stöðuna ömurlega. Lækkunin nemi um fjörutíu prósent af sjóðnum miðað við í fyrra, hann hafi engan veginn haft í við launavísitölu. „Og hoppaðu upp í ...“ Gunnar Helgason tjáir sig einnig um málið. Hann beinir orðum sínum beint til Loga Einarssonar og spyr hvort ráðherrann hafi gleymt samtali sem þeir áttu í fyrra, þar sem barnabókahöfundar hafi lagt fram greinargerð um að lækkun á fjárútlátum til Bókasafnssjóðs árið 2024 hafi verið stjórnarskrárbrot. Hann rifjar upp málið og bendir á að Logi hafi í kjölfarið hækkað upphæðina í sjóðinn en sé nú að lækka hana aftur. „Af hverju? Þú ert að brjóta stjórnarskrána, að mati Réttar. Og þú veist það.“ Gunnar segir að höfundar barnabóka fái lægstu höfundagreiðslurnar þar sem barnabækur séu ódýrari en aðrar bækur. Það sé dónaskapur þegar stjórnmálafólk geti rifið tekjurnar af þeim aftur og aftur. „Þakka þér kærlega fyrir. Og hoppaðu upp í …. (Ég nenni ekki að vera kurteis enda ertu með löngutöng á lofti sjálfur.“ Færslu Gunnars má sjá hér að neðan. Ein íbúð í Stigahlíð Rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson segir að um gríðarlegt tekjutap fyrir rithöfunda sé að ræða. Breytingarnar muni fela í sér að enn fleiri muni leggja frá sér pennann, þar sem starfið hreinlega borgi sig ekki. „Takk fyrir það, kæru Alþingismenn sem hafið stanslaust áhyggjur af íslenskunni. Eða er það bara á tyllidögum?“ Þá setur Ævar upphæðina sem um ræðir í samhengi. Þá upphæð sem allir rithöfundar eigi að deila með sér, hún samrýmist einni íbúð í Stigahlíð.
Fjárlagafrumvarp 2027 Menning Bókasöfn Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira