Formúla 1

Enn og aftur stöðvaður með skot­vopn á flug­velli

Aron Guðmundsson skrifar
Ecclestone réði ríkjum í Formúlu 1 yfir nokkurra áratuga skeið
Ecclestone réði ríkjum í Formúlu 1 yfir nokkurra áratuga skeið Vísir/Getty

Bernie Ecclestone, fyrrverandi stjóri Formúlu 1 mótaraðarinnar, þvertekur fyrir þær sögusagnir að hafa verið handtekinn með haglabyssu í fórum sínum á flugvelli í Portúgal.

Ecclestone segist eingöngu hafa verið stoppaður og yfirheyrður af fjórum lögreglumönnum á Tires Aerodrome fluvellinum í Cascais eftir að hafa ferðast þangað frá Sviss. 

Haglabyssuna hafði hinn 95 ára gamli Ecclestone vissulega með sér til Portúgal þar sem að hann segist hafa ætlað sér að skjóta leirdúfur í keppni þar í landi. 

Haglabyssan var gerð upptæk af lögregluþjónunum þar sem að Eccleston hafði ekki tilskyld leyfi til þess að eiga slíkt vopn.

Eccleston segist hafa áður ferðast með haglabyssuna frá Englandi til Sviss og því bjóst hann ekki við því að lenda í vandræðum við komuna til Portúgal. 

Þar var hann hins vegar yfirheyrður af lögregluþjónum í meira en klukkutíma og þurfti að lokum að láta skotvopnið frá sér.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ecclestone lendir í vandræðum eftir að hafa verið með skotvopn á flugvelli. 

Það gerðist einnig árið 2022 þegar að hann var handtekinn í Brasilíu með byssu á sér er hann ætlaði að ferðast með einkaþotu til Sviss. 

Eccleston var æðsti yfirmaður Formúlu 1 mótaraðarinnar í yfir 40 ár eða þar til hann var látinn hætta árið 2017 í kjölfar yfirtöku Liberty Media á Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×